Ónáttúrulegur gjörningur!
5 september 2011
Gunnar Andri Sigtryggsson er fæddur og uppalinn í Keflavík. Gunnar starfaði hjá lögreglunni í yfir tuttugu ár og vegna starfa sinna býr hann klárlega yfir dýrmætri reynslu þegar kemur að samskiptum við fólk. Alls konar fólk á flestum sviðum þjóðlífsins.
Að búa yfir slíkri reynslu reyndist honum afar dýrmætt þegar hann þurfti að skilgreina viðmælendur sína í starfi lögreglu og einnig sem útvarpsmaður seinna meir.
Síðastliðið ár hefur hann búið í USA og telur aldrei brýnna en einmitt nú að fólk tileinki sér að lifa í „núinu“. Gunnar er áhugamaður um gott mannlíf, réttlæti og virðingu. Hann elskar ekki bara konur, menn og lífið sjálft...hann er nefnilega mikill hestamaður líka.
Spegillinn vill vita hvað Gunnari finnst um konur.
Hvað finnst þér mest heillandi í fari kvenmanns?
Mér finnast allar konur heillandi! Hver kona hefur sín heillandi sérkenni.
Hverju tekurðu fyrst eftir þegar þú hittir hana?
Það er svo misjafnt hvernig maður tekur eftir konu. Það er útgeislunin sem skiptir máli og hún er afar misjöfn hjá hverri konu fyrir sig.
Eitt orð yfir veruna kona?
Guðdómleg.
Magnaðasti íslenski kvenmaðurinn fyrr og síðar?
Móðir mín sáluga hún var yndisleg mannvera.
Hvaða konu myndirðu vilja hitta, til að eiga við hana samræður...ekki samræði?
Ég væri til í að hitta þig, þú ert bæði greind og skemmtileg kona...(hér brosir ritstjóri Spegilsins..).
Fallegasta konan og fellur seint af þeim stalli?
Fallegasta kona sem ég hef augum litið er Hildigard Durr. Ég sá hana fyrst ungur að árum. Hún var um tvítugt og var gift frænda mínum.
Hefur kona eitthvað í fari sínu umfram karlmann?
Já, að sjálfsögðu. Hún hefur sína sérstöðu sem kvenmaður. Ólíkt sköpunarverk.
Fjölbreytni meðal kvenna, kostur? Eða viltu þær allar í sama form?
Konur eru eins ólíkar hver annarri og þær eru margar. Þær eru gífurlega fjölhæfar á svo mörgum sviðum. Það er ekki hægt að færa allar konur í sama formið. Það er ónáttúrulegur gjörningur!!!
Ef konur eru konum verstar, hvað eru karlar?
Ég veit nú ekki hvernig ég á að svara þessari spurningu. Ég held að það sé undir hverjum einstaklingi komið hvernig hann hagar sér, hvernig hann tjáir sig og um hvað. Karlar eru með gjörólíka mynd af tilverunni. Þeir eru einnig með sína kosti og galla ...eins og konur skyldi ég ætla.
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





