logo

Litabók til góðgerða

6 september 2011 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Ung íslensk kona sem búsett er í Århus í Danmörku fór nýskeð af stað með áhugavert verkefni. Spegillinn kíkti í Litabók vol.1.
Björt Sigfinnsdóttir er Kaospilot nemandi og stofnandi/skipuleggjandi LungA sem er listahátíð ungs fólks.
 
Verkefnið, sem Björt kallar Litabók vol.1 er litabók fyrir fullorðna sem samanstendur af teikningum eftir listamenn allstaðar að úr heiminum.
 
 
 
Hr. Bock á þessa mynd
 
Litabókin fékk frábærar viðtökur og Björt fékk sendar inn yfir 50 myndir frá allavega 6 mismunandi löndum (Íslandi, Norðurlöndunum, Kólumbíu og Mexíkó). Myndirnar komu frá öllum aldurshópum, en yngsti þátttakandinn er að verða 15 ára og sá elsti verður 60 ára á næsta ári. Allar innsendar myndir fengu að vera með í bókinni og verkunum er raðað í þeirri röð sem þau bárust. Skipulagðar tilviljanir.
 
 
 
Ida Katrine á þessa mynd
 
Verkefnið er unnið sem fjáröflunarverkefni en ágóðinn af sölu bókarinnar rennur óskiptur til Stígamóta. Björt…og sjálfsagt allir sem koma að gerð þessarar bókar, vilja með þessu framlagi sínu sýna stuðning við hið óeigingjarna og þarfa starf sem Stígamót vinna í þágu samfélagsins. Og um leið sýna samhug með öðrum viðlíka samtökum um allan heim.
 
 
 
Harpa Einarsdóttir á þessa mynd
 
Glæsilegt verkefni og málefnið er gott. Smelltu þér á facebook síðu bókarinnar!
 
Pantaðu Litabók vol.1 hjá bjort@lunga.is og leggðu þitt að mörkum með þessari framtakssömu konu. Svona á fólk að vera!
 
...fyrir utan það hvað það er gaman og róandi að lita smá.
 
steina@spegill.is
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur