logo

Óskabönd

8 september 2011

Hlín Ósk Þorsteinsdóttir hefur í nokkur ár verið að hanna og búa til skartgripi og hefur óbilandi áhuga á öllu sem tengist hönnun og tísku.
Í gegnum tíðina hefur framleiðslan aðallega verið fyrir Hlín sjálfa, fjölskyldu og vinkonur en með tímanum síðan undið upp á sig og fengið afbragðs góðar viðtökur. Skartið kallar Hlín Óskabönd, en nafnið tengist henni sjálfri og dótturinni sem einnig heitir Ósk að millinafni.
 
 
 
 
 
Að hanna skartgripina og sjá þá fæðast er ofboðslega gefandi og skemmtilegt!
 
Hluta af ágóða sölunnar hefur Hlín látið renna til góðra málefni sem tengjast börnum á Íslandi.
 
Vonandi getur mitt framlag uppfyllt ósk einhvers eða hjálpað til við það.
 
Ég er að gera hálsmen, armbönd og eyrnalokka og mig langar einnig til að gera hringa. Það vantar bara aðeins fleiri tíma í sólarhringinn! Ég legg mikið upp úr góðu hráefni og notast mest við orkusteina sem mér finnst ofsalega fallegir og svo hef ég líka mikla trú á því að þeir geri okkur gott.
 
 
 
 
 
Hlín notar líka kristala, ýmsa málma, silfur, hraun og aðra skrautsteina í hönnun sinni. Armböndin eru hennar uppáhald.
 
Skartgripina má nálgast á heimasíðu Óskabanda og þau má finna á facebook.
 
 
 
 
Nokkrar verslanir luma á þessum fallegu skartgripum að auki: Hrím á Akureyri, Butik.is, Birta á Egilsstöðum, Anas í Hafnarfiði og verslunin Couture á Laugaveginum.
 
Spegillinn óskar Hlín til hamingju með Óskaböndin.
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur