16 ára stúlka best í Viðeyjarsundi
11 september 2011

Fyrir stuttu birtist hér í Speglinum viðtal við Írenu Líf, 16 ára stúlku sem hefur unnið hvern sigurinn á fætur öðrum í sjónum. Mánudaginn 6. september s.l. lagði hún af stað frá Viðey í annað sinn, með það að markmiði að bæta besta sundtíma kvenna.
Írena stóð við það og gott betur. Hún náði besta tíma einstaklings sem synt hefur frá Viðey til Reykjarvíkurhafnar, vegalengdina 4,6 km. Hún var eingöngu á sundbol og alveg ósmurð.
Írena á því besta tíma einstaklings í Viðeyjarsundi 1:18,07 án galla, með enga smurningu.
Slær hún þar alla út, karlana líka.
Næsta markmið hjá Írenu er að synda frá Viðey til Reykjavíkurhafnar og aftur til Viðeyjar eða heila 9,2 km. Það ætlar hún að gera eins og áður, ósmurð og í sundbol einum fata. Drangeyjarsund er líka á dagskránni, en þar er sjórinn er mun kaldari og straumar miklir.
Að auki stefnir Írena á að synda Ermasund næsta sumar. Ermasundið er 32 km í beinni loftlínu. Þeir sem synda Ermasund, synda allt að 60 km vegna strauma.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Írenu gera sig klára fyrir Íslandsmótið í sjósundi í sumar.
Við hér á Speglinum óskum Írenu Líf til hamingju með afrekið og óskum henni góðs gengis. Við eigum líklega eftir að sjá mikið af þessari sunddrottningu í framtíðinni.
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





