logo

Strigaskór eru ekki töff lengur

13 september 2011

Gísli Torfi er gullfallegt kvikindi frá „dósinni“, nánar tiltekið: Norður í Húnaþingi. Hann á unnustu sem býr nokkur þúsund mílur í burtu, eða í USA. Gísli og Liz hafa verið saman í 3 ár, og hann segir fjarlægðina ekki skipta nokkru máli, því hann trúir á Guð og elskar hana og lífið. Hann tekur hverjum degi eins og hann kemur fyrir, með bjartsýnina að leiðarljósi og þeirri vissu að allt hafi sinn tilgang.
Spegillinn spurði fjarsambandsgæjann um konur:
 
Hvað finnst þér mest heillandi í fari kvenmanns?
 
Það er nú margt sem heillar mig en ég set atkvæði mitt á persónuleikann. Mjög hressandi líka ef hún er góð í að baka súkkulaðiköku.
 
Hverju tekurðu fyrst eftir þegar þú hittir hana?
 
Ég tek eftir skónum. Strigaskór eru ekki töff lengur. En svona before that þá myndi ég segja: Augu, hár og vöxtur...og hvernig hún kemur fram.
 
Er eitthvað sérstakt við útlit kvenna sem heillar þig?
 
Auðvitað heillast maður af glaðlyndri og brosmildri dömu sem greinilega fer vel með sig líkamlega og andlega. Vel hresst eintak með bullandi húmor í gangi, maður er ekkert að hata það.
 
Eitt orð yfir veruna kona?
 
Heilög.
 
Magnaðasti íslenski kvenmaðurinn fyrr og síðar?
 
Amma mín hún Margrét Sæmundsdóttir.
 
Hvaða konu myndirðu vilja hitta, til að eiga við hana samræður...ekki samræði?
 
Ég væri til í spjall við Desireless og spyrja í leiðinni hvaða stöff hún notaði í hárið á sér 1986.
 
Fallegasti konan og fellur seint af þeim stalli?
 
Mamma er í sérflokki...
 
Hefur kona eitthvað í fari sínu umfram karlmann?
 
Hún hefur þetta kvenlega innsæi (það er sko hellingur af stöffi ) sem við karlmenn stöndum ráðþrota gagnvart.
 
Fjölbreytni meðal kvenna, kostur? Eða viltu þær allar í sama form?
 
Sem betur fer erum við af öllum lengdum og breiddum því öll höfum við misjafnar þrár og þarfir.
 
Ef konur eru konum verstar, hvað eru karlar?
 
Það er ennþá verið að reyna að skilgreina karlmenn.
 
Hvaða kona í þínu lífi hefur haft mest áhrif á þig?
 
Móðir mín, systir mín og amma mín.
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur