logo

Ég sjálf hef mest áhrif á líf mitt

14 september 2011

Hrönn Steingrímsdóttir leikkona er mörgum að góðu kunn. Þeir sem muna eftir þáttunum Fastir liðir eins og venjulega, kannast við hana sem Dullu. Í myndinni Skyttunum söng hún Leonard Cohen með eftirminnilegum hætti. Hún fór með aukahlutverk í þeirri stórgóðu mynd Englar alheimsins og í stuðmannamyndinni Í takt við tímann var hlutverk hennar í tríói með Andreu Gylfa og Helgu Braga...
 
 
...svo fátt eitt sé nefnt úr sögu leikkonunnar.

Hrönn var stillt upp við spegilinn. Okkur þyrsti að vita hvað henni finnst um þetta:
 
Hvað finnst þér mest heillandi í fari karlmanns?
 
Húmor og léttleiki.
 
Hverju tekurðu fyrst eftir þegar þú hittir hann?
 
Ég horfi eftir snyrtimennsku.
 
Er eitthvað sérstakt við útlit karlmanna sem heillar þig?
 
Dökk augu og hár hafa alltaf heillað mig.
 
Hafa karlmenn einhverja kosti umfram konur?
 
Nei, ekki að mínu mati.
 
Magnaðasti íslenski kvenmaðurinn fyrr og síðar, lífs eða liðin?
 
Auður djúpúðga, alveg mögnuð.
 
Hvaða konu/kvenna lítur þú mest upp til, þín helsta fyrirmynd og af hverju?
 
Þar finn ég svo sem enga sérstaka...
 
Fallegasti konan að þínu mati?

Audrey Hepburn.
 
Hefur kona eitthvað í sínu fari umfram karlmenn?
 
Umhyggjuna.
 
Hvað er það í fari karlmanna sem konur ættu að tileinka sér?
 
Ekkert, það er svo einfalt bara.
 
Eru konur, konum verstar?
 
Það held ég að eigi ekki við nema stundum.
 
Hvaða kona í þínu lífi hefur haft mest áhrif á líf þitt?
 
Ég sjálf...
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur