logo

Skil ekki karlmenn sem vilja frekar sjúga pung

16 september 2011

Þórður Helgi Þórðarson eða Doddi litli er flestum landsmönnum að góður kunnur. Gaurinn er fyrst og fremst lover og glæsimenni, en starfar að auki sem prodjúser á morgunútvarpi Rásar 2. Jafnframt er Doddsinn stjórnandi Sportrásarinnar á sömu stöð.
 
Heyrum hvað hann hefur hefur að segja um okkur konurnar....
 
 
 
 
Hvað finnst þér mest heillandi í fari kvenmanns?
 
Viltu rómantískt svar eða sannleikann? Fyrir mér er það sítt hár, brjóst og lykt.
 
Hverju tekurðu fyrst eftir þegar þú hittir hana?
 
Hár fyrst, svo brjóst og rass ....svo rest.
 
Er eitthvað sérstakt við útlit kvenna sem heillar þig?
 
Er þetta ekki endalaust sama spurningin? Já, það er mjög sérstakt hvað allt í fari konunnar heillar mig, get ekki skilið karlmenn sem vilja frekar sjúga pung en að njóta konu. Á sama tíma er ég alveg að fatta lesbíur....
 
Eitt orð yfir veruna kona?
 
Heppnaðist. Typpategundin var greinilega æfing.
 
Magnaðasti íslenski kvenmaðurinn fyrr og síðar?
 
Sigríður María Aðalsteinsdóttir.
 
Hvaða konu myndirðu vilja hitta, til að eiga við hana samræður...ekki samræði?
 
Sigríði Maríu Aðalsteinsdóttur ömmu mína, við vorum ekki búin að klára spjallið.
 
Fallegasta konan og fellur seint af þeim stalli?
 
Sophia Loren.
 
Hefur kona eitthvað í fari sínu umfram karlmann?
 
Fegurð, þokka, glæsileika og að sjálfsögðu móðurtilfinninguna sem ég hef reynt að þróa með mér en ekkert gengið, þrátt fyrir mikla brjóstasöfnun.
 
Fjölbreytni meðal kvenna, kostur? Eða viltu þær allar í sama form?
 
Ætli maður yrði ekki þreyttur á að sjá eingöngu Sophiar Lorenur svo að sjálfsögðu er það kostur og það kostar líka ef út í það er farið...
 
Ef konur eru konum verstar, hvað eru karlar?
 
Þeim er voða mikið alveg sama... nema eftir eina vodkaflösku þá átta þeir sig á því að þeir vilja tjá sig en enginn skilur þá vegna ölvunar svo við drögum okkur bara aftur inn í skelina og skiptum okkur ekki af....
 
Hér er hann svo, gangsterinn: 
 
 
 
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur