Konan sem setti réttlætið ofar öllu
19 september 2011
Ein ástsælasta leikkona okkar Íslendinga, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir tók vel í beiðni um að svara nokkrum spurningum, þrátt fyrir gríðarlegt annríki. En Lilja var að ljúka við leikferð Þjóðleikhússins á Akureyri með Sögustundina um Búkollu. Þar lék hún í alls 9 sýningum fyrir fullu húsi. Afbragðsgóðar móttökur og undirtektir.
Á þessu leiktímabili í Þjóðleikhúsinu leikur Lilja m.a. í Bjart með köflum og Ballinu á Bessastöðum. Tvö afbragðsgóð verk þar sem stuð, fjör og gleði ráða ríkjum.
Að auki er Lilja þessa dagana að æfa hlutverk Amöndu í Glerdýrunum eftir Tenessee Williams, með Fátæka leikhúsinu. En leikhúsið er, eins og nafnið gefur til kynna, fátækt leikhús. Launin eru mælanleg í gleðinni eingöngu (sem er nú svo sem ekkert lítið) og hugsjóninni þar sem Lilju finnst verkið eiga fullt erindi á fjalirnar í dag.
Þetta er magnað verk og mikil áskorun fyrir mig sem leikkonu.
Þegar október bankar upp á með sínum sjarma byrjar Lilja að æfa í Heimsljósi hjá Kjartani Ragnarssyni. En Heimsljós er jólasýning Þjóðleikhússins í ár.
Þetta er nú það helsta sem ég er að gera þessa dagana, segir þessi kraftmikla, geislandi fallega og yndislega kona. Við kunnum henni okkar bestu þakkir. Að auki hvetjum við lesendur til að kynna sér þá stórkostlegu dagskrá sem í boði er á þessu leiktímabili á www.leikhusid.is.
Hvað finnst þér mest heillandi í fari karlmanns?
Mest heillandi í fari karlmanns, er fas hans og framkoma sem segir manni meira en mörg orð.
Hverju tekurðu fyrst eftir þegar þú hittir hann?
Ég tek fyrst eftir augunum, augun eru spegill sálarinnar, svo hlusta ég á talandann.
Er eitthvað sérstakt við útlit karlmanna sem heillar þig?
Fas og framkoma karlmannsins getur gert annað tveggja: Heillað mig eða gert mig fráhverfa manninum.
Hafa karlmenn einhverja kosti umfram konur?
NEI.
Magnaðasti íslenski kvenmaðurinn fyrr og síðar, lífs eða liðinn?
MÓÐIR MÍN og FRÚ VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR.
Hvaða konu eða kvenna líturðu mest upp til, jafnvel sem fyrirmynd?
MÓÐUR MINNAR, Ingunnar V. Hjartardóttur og Ólafar Þorvaldsdóttur.
Fallegasta konan?
Að mínu mati er það MÓÐIR MÍN, Ingunn V. Hjartardóttir.
Hefur kona eitthvað í fari sínu umfram karlmenn?
NEI.
Hvað er það í fari karlmanna sem konur ættu að tileinka sér?
EKKERT!
Eru konur, konum verstar?
NEI!
Hvaða kona í lífi þínu hefur haft þar mest áhrif?
MÓÐIR MÍN. Hún móðir mín sem fæddi mig í þennan heim, ól mig upp, leiðbeindi mér, kenndi mér að lesa, sauma, prjóna, dansa polka, vals og masúrka, rokk, tvist og tjútt af því að ekki var til peningur fyrir dansskóla. Konan sem kenndi mér íþróttir og fimleika s.s. ganga á slá (girðingu), fara flikk-flakk afturábak og áfram, splitt og spígat, þegar hún var að þjálfa 2 eldri systkini mín til að ganga eftir að þau höfðu legið lömuð í ár vegna Mænuveiki (lömunarveiki).
KONAN SEM KENNDI MÉR AÐ BERA VIRÐINGU FYRIR LÍFINU.
KONAN SEM KENNDI MÉR AÐ ALLIR MENN ERU JAFNIR.
KONAN SEM SETTI RÉTTLÆTIÐ OFAR ÖLLU.
KONAN SEM FÆRÐI MÉR LÍFIÐ, MÓÐIR MÍN , HEFUR HAFT MEST ÁHRIF Á LÍF MITT, OG HEFUR ENN, ÞRÁTT FYRIR AÐ HAFA LÁTIST ÁRIÐ 1980.
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





