logo

Fer þangað sem aðrir karlar komast ekki

20 september 2011

Hilmar Bragi Bárðarson er rétt rúmlega fertugur fjölmiðlamaður á Suðurnesjum, í sambúð og með fullt hús af börnum. Hilmar hefur starfað síðustu 24 ár sem blaðamaður, fréttaljósmyndari og síðar einnig sem kvikmyndatökumaður. „Ég lifi og hrærist í fólki og fréttum alla daga og læt mér fátt óviðkomandi,“ segir Hilmar Bragi. 
Hann er í dag fréttastjóri Víkurfrétta, sem er stærsta fréttablaðið á Suðurnesjum og rekur vefinn vf.is, sem flytur þaðan fréttir.
 
Hilmar hefur einnig myndað talsvert fyrir dagblöðin og á reglulega myndir í fréttum sjónvarpsstöðvanna. Vinir hans lýsa honum sem orðheppnum, enda fer hann oft í orðaleiki í stöðufærslum sínum og sér oftar en ekki spaugilegar hliðar á málum sem aðrir geta alls ekki spaugað með.
 
Þegar Hilmar Bragi er ekki að eltast við fréttir er hann með fjölskyldunni. Hann segir að það sé gæðastund að vera með konu og börnum og þær stundir mættu gjarnan vera fleiri. Fjölskyldan reyni að ferðast innanlands og yngsti fjölskyldumeðlimurinn, Birta María sem verður 5 ára í október, vilji helst flytja í tjaldvagninn yfir sumartímann.
 
Ljósmyndaáhugi Hilmars Braga leiddi af sér eina ljósmyndasýningu fyrir mörgum árum og þessi misserin er Hilmar Bragi að viða að sér efni í sýningu sem til stendur að halda á næsta ári. Það býr listamaður innra með Hilmari Braga sem hann ætlar að sleppa lausum. Hann vinnur í dag að all sérstökum myndverkum sem unnin eru með stafrænni tækni. Hann vill lítið meira segja um þessi myndverk að svo stöddu, annað en það að þau eigi vonandi eftir að prýða einhver heimili í framtíðinni.
 
Eftir næstum aldarfjórðung í fjölmiðlum og með myndavélina um hálsinn, hefur Hilmar Bragi myndað ófáa í leik og starfi á Suðurnesjum. Allar helstu drottningar Suðurnesja síðustu tvo áratugi hafa lent á mynd hjá Hilmari á einhverjum tímapunkti. Á árunum níutíuogeitthvað var hann með myndavélina á djamminu bæði föstudags- og laugardagskvöld. Það leiddi af sér konu og tvö börn. Hann hefur oftar en ekki, í krafti þess að vera fréttaljósmyndari, komist þangað sem aðrir karlar hafa ekki komist. Til dæmis inn á lokuð konukvöld. Það er því við hæfi að leggja nokkrar spurningar um konur fyrir Hilmar.
 
Hvað finnst þér mest heillandi í fari kvenmanns?
 
Ég heillast alltaf af þokka íslenskra kvenna og sjálfstæði. Ég sé núna fyrir mér hóp kvennaskólastúlkna á peysufatadegi í miðborg Reykjavíkur á sólríkum degi.
 
Hverju tekurðu fyrst eftir þegar þú hittir hana?
 
Í návígi við kvenfólk tek ég alltaf fyrst eftir hárinu og svo er alltaf eitthvað sérstakt við hálsinn á konum. Mér var nú kennt að horfa í augun á fólki, enda segja þau manni alveg helling. Hvaða karlmaður missir svo ekki augun niður á brjóstin og stinnan rass?
 
Er eitthvað sérstakt við útlit kvenna sem heillar þig?
 
Hávaxnar og leggjalangar konur eru heillandi.
 
Eitt orð yfir veruna kona?
 
Meistaraverk.
 
Magnaðasti íslenski kvenmaðurinn fyrr og síðar?
 
Ég held að Bríet Bjarnhéðinsdóttir sé sú íslenska kona hvað mestu hefur áorkað að öðrum ólöstuðum. Mig langar einnig að nefna Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta. Ég væri til í að sjá kraftmikla konu í forsetastól.
 
Hvaða konu myndirðu vilja hitta, til að eiga við hana samræður... ekki samræði?
 
Frigg Fjörgynsdóttur. Hún er höfuðgyðjan í norrænni goðafræði. Örugglega áhugaverð gyðja að ræða við.
 
Fallegasta konan og fellur seint af þeim stalli?
 
Ég sé enga fallegri en hana Birtu Maríu dóttur mína. Langar samt að nefna Hólmfríði Karlsdóttur fyrrum alheimsfegurðardrottningu og Scarlett Johansson sem hefur alltaf verið flott og hefur komið sterk inn síðustu daga.
 
Hefur kona eitthvað í fari sínu umfram karlmann?
 
Hvurslags spurning er þetta eiginlega? Það er ekkert sem toppar glæsileika ykkar kvenna. Móðureðli ykkar er einnig eitthvað sem karlmenn eiga ekki séns í. Ég þekki alveg rosalega margar konur sem ég myndi vilja að væru mömmur mínar. Sumar hafa þær eldað fyrir mig og aðrar bakað. Kannski hef ég bara á þeim matarást?
 
Fjölbreytni meðal kvenna, kostur? Eða viltu þær allar í sama form?
 
Ég elska konur eins og þær eru. Mjúkar línur og mallakútur er bara ekkert til að skammast sín fyrir. Konur eiga alls ekki að vera steyptar í sama form en það á samt að fara varlega með að steypa í formin sem eru notuð til að búa til Olgur og Svettlönur sem kasta kúlum og spjótum á Olympíuleikum. Ég hef hins vegar tamið mér það að dæma ekki fólk af útlitinu, heldur horfi ég á innri mann.
 
Ef konur eru konum verstar, hvað eru karlar?
 
Klókir að nýta sér veikleika kvenna.
 
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur