Konur eru nær alltaf í buxum
22 september 2011
Manninn þekkja flestir. Hann heitir Valgeir Skagfjörð og þessa dagana er hann að búa til tónlist fyrir Stundina okkar í sjónvarpinu. Hann kennir íslensku hjá Alþjóðasetri Íslands, skrifar leikrit og annað slagið heldur hann námskeið fyrir reykingamenn sem vilja hætta að reykja.
Þess má líka geta að Valgeir sér um íslensku söngtextana á nýju Færeyja/ Íslands plötunni þeirra Friðriks Ómars og Jógvans Hansen. En hann gerði líka íslensku textana á fyrstu plötunni þeirra (Vinalög). Nýja platan geymir færeysk og íslensk barnalög.
Sunnudagskvöldið 2. október heldur Valgeir tónleika í Von (SÁÁ) þar sem hann flytur tónlist og texta eftir sjálfan sig. Almennt er maðurinn svo í því að njóta lífsins.
Spegillinn dembdi manninum gegnum spurningalista um konur. Þetta er niðurstaðan:
Hvað finnst þér mest heillandi í fari kvenmanns?
Glaðværð og svo þetta sem við köllum stundum ,,carisma” sem hefur mest lítið
með útlit að gera.
Hverju tekurðu fyrst eftir þegar þú hittir hana?
Ég tek mikið eftir augum, raddblæ og hreyfingum.
Er eitthvað sérstakt við útlit kvenna sem heillar þig?
Fallegir fótleggir en þeir sjást svo sjaldan af því konur eru nær alltaf í
buxum.
Eitt orð yfir veruna kona?
Ég á fjórar dætur sem eru hver annarri fallegri svo ég segi einfaldlega að
Guð hafi toppað sköpunarverkið þegar hann skapaði Evu.
Magnaðasti íslenski kvenmaðurinn fyrr og síðar?
Guðrún Ósvífursdóttir - engin spurning.
Hvaða konu myndirðu vilja hitta, til að eiga við hana samræður...ekki
samræði?
Hilary Clinton.
Fallegasta konan og fellur seint af þeim stalli?
Linda Pétursdóttir.
Hefur kona eitthvað í fari sínu umfram karlmann?
Hún er í fyrsta lagi miklu fallegri og almennt greindari.
Fjölbreytni meðal kvenna, kostur? Eða viltu þær allar í sama form?
Konur eru sem betur fer allavega og þannig eiga þær að vera. Hver með sínu sniði.
Ef konur eru konum verstar, hvað eru karlar?
Þetta er sleggjudómur og á sama hátt er ekki hægt að alhæfa um karlmenn. Það
eru góðar konur og góðir menn út um allt sem vilja vera góð hvert við annað.
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





