Þið þroskist alltaf betur og betur
25 september 2011
Hermann Óli er margra ára gamall strákur. Hress og opin týpa en á það til að verða óþolinmóður og ákveðinn með eindæmum og verður oft að eiga síðasta orðið. Hann segist ekki þola fólk sem lætur rigna upp í nefið á sér.
Hemmi segist gera mistök eins og aðrir og vita að hann sé ekki fullkominn. Enda sé það enginn. Honum finnst ægilegt að hugsa til þess að einhvern tíma munum við öll deyja. Samt hlakkar hann til þess að eldast. Hann er mömmustrákur sem veit ekki hvar hann væri án móður sinnar og segist heppinn að eiga fáa en virkilega góða vini og fjölskyldu sem tekur honum eins og hann er.
Hann er starfandi hárgreiðslumaður og klippari á Modus Hárstofu í Kópavogi. En Hermann eignaðist stofuna fyrir stuttu. Þar vinna auk Hemma, þrjár skvísur, þær Hanna Kristín, Andrea og Þóra Björg.
Spegillinn spurði þennan hressa strák um konur:
Hvað finnst þér mest heillandi í fari kvenmanns?
Byrjum á einu, kvenmaður á alltaf að vera kölluð stelpa eða smart dama. Mest heillandi að mínu mati er þegar stelpa/dama labbar teinrétt og af miklu öruggi, háum hælum og kann það. Ekkert er verra en stelpa sem er á gordjöss hælum en labbar eins og fáviti...þá langar mig oft að saga undan skónum hennar og brosa.
Hverju tekurðu fyrst eftir þegar þú hittir hana?
Sem hárgreiðslumaður horfi ég mikið á hár á stelpum/dömum og fæ mikinn hroll ef ég sé stelpur/dömur með mikla rót og slitna enda. Stelpur með fallegt hár eru æði!
Er eitthvað sérstakt við útlit kvenna sem heillar þig?
Óléttar stelpur heillar mig svakalega, það er alltaf einhver ljómi og eitthvað æðislegt við þær. Meira að segja þegar pirringurinn, þreytan og öskrin eru sem mest, þá getur maður ekki annað en brosað eftir á. Get ekki alveg útskýrt þetta...
Eitt orð yfir veruna kona?
Snillingur!!!!
Magnaðasti íslenski kvenmaðurinn fyrr og síðar?
Ég verð að segja hún móðir mín Jóhanna Bjarnadóttir, þessi kona hefur höndlað mig í 27 ár, pirringinn minn, tárin mín, afrekin mín og fáa skandala og mistök sem ég hef gert og þá er nú mikið sagt. Eins og hún sjálf orðaði það einu sinni:
Hermann minn það er jafn erfitt að hata þig og elska þig! ...og knúsaði mömmustrákinn sinn. Elska hana mest!!!
Hvaða konu myndirðu vilja hitta, til að eiga við hana samræður...ekki samræði?
Væri virkilega til í að hitta Sigrúnu stofnanda Gyðju. Hún er svo heillandi, heilsteypt og greinilega vel klár í því sem hún er að gera. Vildi að fleiri konur myndu framkvæma draumana sína eins og hún.
Fallegasta konan og fellur seint af þeim stalli?
Úffff virkilega erfitt, en sú sem fellur seint af toppnum er Carmen Dell´Oferice sem er 80 ára og ennþá starfandi sem fyrirsæta, stórglæsileg dama.
Hefur kona eitthvað í fari sínu umfram karlmann?
Já það hafið þið elskurnar. Við strákarnir erum börn til 25 ára aldurs, 25 til 35 ára eru einu árin sem við erum þroskaðir. Eftir 35 ára aldur förum við aftur í barndóm og förum að haga okkur eins og algjör börn og hálfvitar og þið þurfið að passa upp á okkur að eilífu. Það sem þið hafið umfram okkur er að þið þroskist alltaf betur og betur eins og gott rauðvín.
Fjölbreytni meðal kvenna, kostur? Eða viltu þær allar í sama form?
Auðvitað er fjölbreytni meðal stelpna kostur. Það væri ekkert skemmtilegt ef allar stelpur væru eins í lögun eða skapgerð.
Ef konur eru konum verstar, hvað eru karlar?
Strákar eru strákum verstir líka.
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





