Blind og heyrnarlaus náði hún því samt að verða rithöfundur
28 september 2011
Spegillinn kom að máli við Evu Hauksdóttur og átti við hana létt spjall. Meðal annars um konur og karla. Hörkukona með ákveðnar skoðanir...við byrjuðum á því að spyrjast fyrir um hvað konan væri að sýsla.
Heyrðu já, það sem ég er að gera þessa dagana. Ég er að leggja drög að opnun neyðarathvarfs fyrir lögreglumenn sem vilja komast út úr þessu hræðilega starfi. Maður hefur alltaf haldið að kynlífsþrælar og fíkniefnaburðardýr séu frekar kúgaðar stéttir en nú er komið í ljós að píndasti minnihlutahópur samfélagsins er lögregluþjónar. Ég má ekkert aumt sjá og tel því skyldu mína að hjálpa þeim sem vilja hætta. Slagorð athvarfsins verður ,,búum til betri heim, sameinumst hjálpum þeim." Vandamálið er að ég hef takmarkað aðgengi af fjármagni svo ég bið þá sem vilja styrkja þetta verðuga málefni og vinna sjálfboðavinnu við aðhlynningu lögreglumanna og uppbyggingu starfsins, að hafa samband við mig.
Þá vitum við það og vindum okkur í spurningarnar:
Hvað finnst þér mest heillandi í fari karlmanns?
Það fer nú dálítið eftir því hver maðurinn er og hvaða tengsl ég hef við hann. Pabbi minn er t.d. mjög heillandi maður en þó á allt annan hátt en t.d. aktivistinn Lalli sjúkraliði. Ef þú átt við hvað mér þyki mest heillandi við karlmann sem ég gæti hugsað mér sem maka, þá er það sjálfstæð hugsun, hugrekki og samlíðan. Ég heillast líka af mönnum sem sjá húmor í öllum aðstæðum (sem er allt annað en að kunna brandarasafn utan að) en maður byggir svo sem ekki framtíðarkynni á sniðugheitum. Ef út í það er farið eru það sömu eiginleikar sem heilla mig í fari kvenna.
Hverju tekurðu fyrst eftir þegar þú hittir hann?
Auðvitað tek ég fyrst eftir þeim útlitseinkennum sem eru mest áberandi hjá hverjum og einum, ásamt málfari og fasi almennt. Það sem sker úr um það hvort mér finnst hann aðlaðandi eða ekki svona við fyrstu sýn er það hvort hann hefur eitthvað áhugavert fram að færa, nýtt sjónarhorn eða upplýsingar sem vekja áhuga minn og svo bráðna ég mjög auðveldlega ef hann sýnir merki um að vera góð manneskja. Ég tek t.d. eftir því hvernig hann kemur fram við börn og hvernig hann talar um aðra.
Er eitthvað sérstakt við útlit karlmanna sem heillar þig?
Lítil lopapeysa á ryðguðu reiðhjóli er alveg mín týpa. Ég heillast af mönnum sem eru svolítið sakleysislegir í útliti og alveg sérstaklega þegar kemur svo í ljós sterkur karakter á bak við krúttbrosið. Mér finnst Halli í Botnleðju vera kynþokkafyllsti karlmaður á Íslandi.
Hafa karlmenn einhverja kosti umfram konur?
Já, þeir geta borið þvottavélar. Ég er óendalega þakklát öllum þeim karlmönnum sem hafa hjálpað mér að flytja og unnið fyrir mig hefðbundin karlaverk sem ég hef engan áhuga á að læra eins og t.d. bílaviðgerðir eða verk sem ég hef ekki líkamsburði til, eins og að valda risastórum hekkklippum. Fátt er fegurra en karlmaður með höggborvél og skal ég með ánægju strauja skyrtu fyrir hvern þann mann sem losar mig undan því að þurfa að meðhöndla svo satanísk tól.
Magnaðasti íslenski kvenmaðurinn fyrr og síðar, lífs eða liðinn?
Vá, ég get ekki einu sinni valið bestu íslensku bíómyndina. Þær fáu konur sem nefndar eru í sögubókum voru náttúrulega allar verulega magnaðar en ef ég ætti að nefna konu sem enn er á lífi þá er Freyja Haraldsdóttir sú fyrsta sem kemur upp í hugann. Hún hefur þrátt fyrir fötlun sem gerir hana líkamlega ósjálfbjarga, lyft grettistaki í réttindabaráttu fatlaðra og með því að harðneita að líta á sjálfa sig sem fórnarlamb hefur hún gefið samfélaginu nýtt sjónarhorn.
Hvaða konu/kvenna lítur þú mest upp til, þín helsta fyrirmynd og af hverju?
Ég á enga sérstaka fyrirmynd í þeirri merkingu að ég reyni beinlínis að líkjast henni eða tileinka mér hegðun hennar. Sú kona sem líklega hefur haft mest áhrif á lífsviðhorf mín er Helen Keller en saga hennar sannfærði mig um að það hvernig manni vegnar í lífinu veltur miklu meira á manns eigin túlkun á veruleikanum en ytri aðstæðum. Hún var uppi um aldamótin 1900 og þótt hún væri bæði blind og heyrnarlaus náði hún því samt að verða rithöfundur. Hún var kvenréttindakona, sem var nú bara helvíti töff á þeim tíma og hélt fjölda fyrirlestra þrátt fyrir fötlun sína.
Fallegasta konan að þínu mati?
Fallegasta kona á Íslandi er Kristín Hermannsdóttir veðurfræðingur. Ég hef aldrei hitt hana og hef enga hugmynd um hennar innri fegurð en ytra byrðið er allavega fagurt.
Hefur kona eitthvað í sínu fari umfram karlmenn?
Fyrir utan hið augljósa að geta alið börn og hafa oftast fallegri brjóst, þá sé ég ekki að konur hafi neitt sérstakt fram yfir karlmenn frá náttúrunnar hendi. Konur eiga hinsvegar oft auðveldara með að skilja mig, bara af því að þær hafa svipaða reynslu og ég. Mér finnst dýrmætt að eiga vini af báðum kynjum en ég hef oftar þörf fyrir að tala við konur um það sem snertir einkalíf mitt og tilfinningar. En ég á heldur ekki maka og það spilar kannski inn í.
Hvað er það í fari karlmanna sem konur ættu að tileinka sér?
Ég vil ekki að konur tileinki sér neitt sérstakt í fari karlmanna. Konur sem kyn eru bara stórfínar eins og þær eru og þurfa ekkert að afsaka tilveru sína eða fara sömu leiðir og karlar. Það stendur svo upp á hvern og einn að rækta sjálfan sig og þá hlýtur maður að horfa til fólks sem manni finnst áhugaverðar og góðar manneskjur, óháð kyni.
Eru konur, konum verstar?
Ætli þær geti ekki bæði verið konum verstar og bestar. Hvaðan kemur þessi frasi annars? Ég heyri aldrei þessa kröfu um að einhverja sérstaka samheldni milli karla á grundvelli kynferðis. Ég hef ekki svarið konum neinn hollustueið og gagnrýni konur ekkert síður en karla ef mér finnst ástæða til.
Hvaða kona í þínu lífi hefur haft mest áhrif á líf þitt?
Sennilega hefur nú móðir mín mótað karakter minn öðrum fremur, er það ekki algengast? Systur mínar hafa svo haft töluverð áhrif á ytri þætti eins og t.d. búsetu og félagslíf. Ég held hins vegar að engin kona í lífi mínu hafi haft mikil áhrif á skoðanir mínar á fullorðinsárum. Enda felst gagnrýnin hugsun í því að taka allskonar skoðanir úr ýmsum áttum og vega þær og meta. Því miður eru of fáar konur sem tjá sig opinberlega um hluti sem vekja mér áhuga svo ég er örugglega undir meiri áhrifum frá körlum. Ég veit ekki hvernig stendur á því en það virðast ekkert vera mjög margar konur sem sækjast eftir því að hafa áhrif. Ég vildi sjá það breytast en ekki endilega með því að fleiri konur taki þátt í flokkspólitík eða taki að sér stjórnunarstöður. Ég vildi frekar sjá fleiri konur sem ekki hafa áhuga á að sanka að sér völdum, taka þátt í samfélagsumræðu.
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





