logo

Mummi MótorSmiðjan

2 október 2011

Guðmundur Týr Þórarinsson eða Mummi í MótorSmiðjunni er eilífðartöffari, það er bara þannig. Mummi á og rekur MótorSmiðjuna. Hann er fjölhæfur töffari vægast sagt og sjálfsagt vita færri að hann er kvikmyndagerðarmaður að mennt og hyggst láta að sér kveða á þeim vettvangi innan skamms, en dulúð liggur yfir þeim áformum . Þrátt fyrir gríðarlegar annir í ört vaxandi og blómstrandi fyrirtæki, gaf hann sér tíma til að svara nokkrum spurningum um konuna.
Hvað finnst þér mest heillandi í fari kvenmanns?
 
Hin meðfædda samskiptahæfni kvenna heillar mig alltaf jafn mikið eða sú listgrein að gera umræður um einfalda hluti svo flóknar að meðal doktorsgráða í hugvísindum getur ekki rakið uppruna samtalsins. Þetta flytur meðfæddan athyglisbrest minn í nýjar hæðir í hvert sinn. En á því augnabliki er ég sannfærður um að ég hafi illilega rangt fyrir mér og trúi því einlæglega að við séum að tala um eitthvað ALLT annað en við lögðum upp með í upphafi orðaskipta.
 
Hverju tekurðu fyrst eftir þegar þú hittir hana?
 
Hvort hún sé með tennur...ef svo þá sínar.
 
Er eitthvað sérstakt við útlit kvenna sem heillar þig?
 
Ef Gaui litli kemur ekki upp í hugann á því augnabliki...getur það verið hvað sem er.
 
Eitt orð yfir veruna kona?
 
Pharadox!
 
Magnaðasti íslenski kvenmaðurinn fyrr og síðar?
 
Selja Dís Jónsdóttir.
 
Hvaða konu myndirðu vilja hitta, til að eiga við hana samræður...ekki samræði?
 
,,Ragnheiður biskupsdóttir brókasótt var með”...tilvitnun endar, Megas...
 
Fallegasta konan og fellur seint af þeim stalli?
 
Ragnheiður Jónsdóttir F: 1646- D: 1715 (sjá 5000 kallinn).
 
Hefur kona eitthvað í fari sínu umfram karlmann?
 
Sjá fyrsta svar.
 
Fjölbreytni meðal kvenna, kostur? Eða viltu þær allar í sama form?
 
Fjölbreytni er klárlega kostur...annars væri maður alltaf að ruglast á þeim...og þá verður allt vitlaust.
 
Ef konur eru konum verstar, hvað eru karlar?
 
Við karlmenn erum svo miklir einfrumungar að við metumst bara í huganum á almennings baðhúsum og svo þarf bara einhver að vinna og einhver að tapa....málið dautt!
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur