logo

Bjartir litir boða vor

20 október 2011 - Anna Birgis

Í hinum ýmsu útfærslum eru hönnuðir búnir að setja bjarta liti á tískuna. Samfestingar, kjólar, pils og fleira verða í boði næsta vor. Þetta er svo sumarlegt að mér hlýnaði bara við að skoða þessar myndir. Það er svo æðislegt að sjá flottar stelpur í björtum litum þegar sumra tekur. Þetta vita þeir hönnuðirnir og hafa sko ekki verið að draga úr litagleðinni fyrir vorið 2012. Ég ætla að sýna ykkur elskurnar, nokkra ofsalega fallega kjóla í björtum litum sem detta í búðir næsta vor.
Ég byrja á sjúklegum appelsínugulum kjól frá Marc by Marc Jacobs. Einfalt snið sem hentar öllum konum og hann er frekar casual svo hægt væri að nota hann við flest öll tækifæri.
 
 
Badgley Mischka er með ofsalega flottan gulan kjól. Hann er hlýralaus og afar sumarlegur. Sniðið er mjög spes og ég myndi segja að hann hentaði við fínni tækifæri. Að poppa upp svona kjól með fallegum opnum skóm í jafnvel bláu eða fjólubláu væri rosalega smart.
 
 
 
Og sjáið þessa tvo frá Derek Lam, vá vá...annar er síður og fleginn og efnið er ofsalega létt og flott. Og svo er það skær rauður samfestingur í rosalega fallegu sniði. Stutterma og buxurnar hafðar mjög víðar. Við þennan væri líka smart að hafa breitt belti í næstum hvaða lit sem er. Það er svo mikið í tísku fyrir næsta sumar að raða saman ólíkum litum.
 
 
 
Donna Karan er hérna með blóðrauðan stelpulegan kjól. Skemmtilegt snið sem minnir svolítið á gamla tíma. Það er örugglega hægt að snúa sér í flottan hring í þessum kjól þar sem pilsið myndi þyrlast í kringum þig. Og svo er hérna ofsalega smart dress, kápa og mjög spes kjóll. Kjóllinn virðist vera í þrem lögum, svartur, brúnn og svo appelsínugulur. Hann er saumaður með smá rykkingu sem leggst á ská yfir líkamann. Ég myndi segja að þetta væri kjóll sem er grennandi. Takið líka eftir hálsmeninu sem módelið er með.
 
 
 
Doo Ri er hér með ofsalega fallegan appelsínugulan kjól sem er styttri öðrum megin, langerma og kemur eins og hann sé vafinn yfir mjöðmina. Flott snið sem sýnir leggi og þá verður að passa að vera í skóm sem gera leggina enn lengri.
 
 
Helmut Lang er með fallegan gulan kjól. Hann er í svona ,,layering”; þunnt siffon efni yfir heilan topp og neðri hluta. Þessi kjóll sýnir margt en skilur helling eftir fyrir ímyndunaraflið. Mjög töff og klæðilegur.
 
 
Sjáið svo þessa rauðu dýrð frá Valentino. Hann klikkar aldrei. Blúnduefnið er algjör draumur og kjóllinn er mjög passlega síður með skemmtilegum detail að neðan sem minnir á pífu. Það þarf einfalda flatbotna skó við þennan kjól...að mínu mati væri það langflottast.
 
 
 
Höfundur: Anna Birgis
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur