logo

Nýtt útlit í Speglinum

30 október 2011 - Heiða Þórðar

Við þökkum þeim fjölmörgu konum sem tóku þátt og langaði í nýtt útlit í boði Spegilsins. Eins og alltaf er því miður einungis ein sem hlýtur hnossið.
 
Vinningshafinn að þessu sinni er Elísabet. En þessi flotta kona er í sambúð. Hún á einn son sem er að verða 1 og ½ árs. Konan vinnur í Félagsþjónustunni og á sambýli. Áhugamálin eru útivist, menning og listir og að vera í góðra vina hópi.
Um er að ræða nýtt útlit (make over) í boði Modus hárstofu. Eigandi stofunnar, Hermann Óli Bachmann, sér um hárið ásamt stelpunum sem vinna hjá honum. Og ekki má gleyma faglegri förðun; en hin hæfileikaríka Bryndís Gyða Michelsen sér um að fegra ásjónuna af sinni kunnu snilld. Nýtt útlit fyrir Elísabetu í höndum fagfólks.
 
Þessi heppna dama fær sannkallaðan langan dekur laugardag. Hár, förðun og veglega gjafakörfu með hársnyrtivörum í boði TIGI. Við kunnum þeim bestu þakkir fyrir. Að auki ætla stelpurnar í Nærveru að gefa gjafabréf að andvirði 15 þúsund krónur, hvorki meira né minna. Endilega kíkið við hjá þeim, vá bara flott!
 
Og þá meina ég bara flott sko!
 
Eftir þennan dásamlega dekurdag í höndum Hermanns og co mun sú heppna fara í myndatöku hjá frábærum ljósmyndara, hver vill ekki eiga fallega mynd af sér? Bragi Kort sér um þau herlegheit.
 
Síðast en ekki síst mun daman okkar fara út að borða um kvöldið á veitingastaðinn Silfur á Hótel Borg, ásamt maka, ástmanni, vinkonu eða kærustu, mömmu eða pabba. En veitingastaðurinn Silfur er klárlega einn af okkar fremstu veitingastöðum í dag, er viðkemur hráefni, matreiðslu og faglegri þjónustu.
 
Umsögn gesta hvaðan að úr heiminum er ekki af verri endanum.
 
Til hamingju Elísabet, við hlökkum mikið til að fylgjast með og birta afraksturinn í Speglinum.
 
heida@spegill.is
 
 
Höfundur: Heiða Þórðar
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur