logo

GAGA -íslensk hönnun

1 nóvember 2011 - Anna Birgis

Hún heitir Guðrún Gerður Guðrúnardóttir og er að eigin sögn bara þessi venjulega kona með mikla orku og nennu til að koma sér áfram. Hún byrjaði mjög ung eða sem krakki að teikna og gera dúkkulísur, því í þá daga var ekkert keypt, ekki einu sinni dúkkulísur.
 
Þetta bjó hún allt til sjálf og síðan bjó hún til föt á dúkkulísurnar. Um átta ára aldur fór hún að prjóna. Eins og á þessu má sjá, byrjar hún Guðrún Gerður mjög snemma. Heima hjá henni var mikil fátækt og hún byrjaði snemma að vinna og leggja til heimilisins. Það þótti ekkert tiltökumál. Hennar skólaganga var búin þegar hún var 14 ára. Móðuramma Guðrúnar, Anna Sigurðardóttir (Anna í Ási) var kjólameistari og þar lærði hún af ömmu sinni mörg handtökin. En Guðrún hafði einnig mjög góðan handavinnukennara þegar hún gekk í skóla. Konan getur gert allt mögulegt og lætur ekkert stoppa sig í því.
 
 
 
 
Það er saga á bak við hönnunina, það er að segja af hverju hún byrjaði að vera sýnileg. Guðrún hafði gaman af að sauma föt á konur þegar hún var um tvítugt en henni fannst það ekki vera að gefa sér neitt að gera. Svona þetta venjulega eins og hún kallar það. Fötin hennar voru alltaf öðruvísi og hafði Guðrún meira gaman af þeim. Það sem varð til þess að hún fór að verða sýnileg var að hún missti dóttur sína sem var þá aðeins 27 ára. Það varð Guðrúnu einhver fróun að gera allt svo fyndið og geta hlegið að öllu sem hún var að gera.
 
Fólk sem heimsótti mig fannst þetta eða hitt oft svo fyndið og mér var ráðlagt að fara út í atvinnurekstur sem ég gerði.
 
 
 
 
Guðrún hugsar sjaldan um afleiðingarnar, hún framkvæmir og sér svo bara til. Jólin 2009 var hún að hugsa um að hætta öllu. En þá missti hún son sinn aðeins 24 ára gamlan. Við það áfall var henni nærri allri lokið. En til að lifa áfram þá varð hún enn öflugri en áður og meira ákveðin í að vinna og gleyma sér. Þessi tvö áföll í lífi hennar hafa markað hana mjög djúpt. En allir deyja og viðhorf Guðrúnar er til þessa að halda áfram að lifa og reyna að hafa gaman af því sem hún er að gera og gleðja aðra. Taka vel á móti fólki og fá fólk til að fara himinlifandi út frá henni. Þá er hún Guðrún ánægð.
 
 
 
 
Ég spurði Guðrúnu hvort hún ætti uppáhalds hönnuð, erlendan eða innlendan: Nei, engan sem ég get nefnt.
 
Guðrún fær sýnar hugmyndir frá landinu okkar. Hún hefur ferðast svolítið um landið og þaðan koma hennar hugmyndir. Landið er fullt af mynstrum og mörgum furðuverkum segir Guðrún.
 
 
 
Guðrúnu finnst mikil aukning á íslenskri hönnun síðastliðin ár.
 
Hún á sér þá ósk heitasta að geta farið í ferðalög en hún gerir lítið af því nú orðið. Þegar hún er heima þá er hún alltaf í vinnunni og hefur ekki tíma í nein hobby.
 
Gaga merkið er ágætlega þekkt og Guðrún segist selja meira til útlendinga en innanlands.
 
Þegar ég spurði Guðrúnu hvort hún héldi að það væri Listaháskólanum að þakka þessi sprenging í íslenskri hönnun, svarar hún:
 
Ekki endilega, ef eitthvað hjálpaði Íslendingum þá var það kreppan. Það sem ég er ánægðust með er að það eru svo margir strákar sem fara í hönnun og þeir eru frábærir.
 
 
 
Guðrún segist lítið eða ekkert hafa verið að skoða það sem aðrir eru að gera en segist vita að við séum öðruvísi og jafnvel betri en erlendir hönnuðir. Það er hægt að nota og vera í íslensku fötunum en oftast eru þau ekki nothæf þessi sem eru frá öðrum löndum og þess vegna erum við fær í flestan sjó. Enda eru Íslendingar komnir af sterku fólki.
 
Gaga hönnun er á facebook.
 
Skoðið það sem hún er að gera þessi magnaða kona.
 
Höfundur: Anna Birgis
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur