logo

Karlmenn tala meira um konur en konur um karlmenn

9 nóvember 2011 - Heiða Þórðar

Við förum örsjaldan í haminn spéspegill, en sumt er svo útpælt og spaugilegt sem sagt er um kynin og samskipti þeirra að við stöndumst ekki mátið. Stutt samantekt af bulluðum staðreyndum um kynin. Misgóðum og misrökréttum...eins og ávallt í slíkum pælingum.
Karlmenn eru ekki skyggnir, segðu hug þinn.
 
Stelpur sem vilja heyra sannleikann, ættu ekki að spyrja spurninga.

Ekki ætlast til þess að gaurinn þinn sé eins og gaur í atriði úr bíómynd, það tekur 10 venjulega gaura að „púlla“ einn venjulegan; úr holdi og blóði.

Allir strákar eru „kinky“ og því til í að prófa margt. Láttu hann vita ef þú dettur í stuð.

Gaurar eru tilfinningaríkari en þú heldur. Ef hann elskar þig og sambandið slitnar, á hann mun erfiðara með að jafna sig en þú.

Eldamennska gerir allar konur meira aðlaðandi.

Það eina sem gaurar hafa að segja eftir kynlíf er; góða nótt.

Tölvuleikir hafa hjálpað mönnum í fingrafimi, og eru þeir þar af leiðandi viljugri í að „leika“ oftar.

99,8% allra karlmanna vilja í raun og veru ekki særa konur.

Vel getur verið að kærastinn þinn daðri daginn á enda, en ef hann elskar þig raunverulega, ert það þú sem hann hugsar um þegar hann fer að sofa.

Gaurar hata þegar þú talar um þinn fyrrverandi.

Þegar kærastinn segir þér frá vandamáli, þá vill hann að þú hlustir. Ekki að þú gefir honum ráð.

Ef hann stríðir þér, þá er hann skotinn í þér.

Karlmenn elska meira en konur elska karlmenn.

Hversu mikið sem karlmaður talar um hversu sexý þú ert eða heit, þá hrífst hann mest af persónuleikanum.

Ef karlmaður fer að tala á alvarlegum nótum, hlustaðu. Gerist ekki það oft.

Karlmenn eiga við meiri vandamál að stríða en þú getur ímyndað þér.

Karlmenn tala meira um konur, en konur um karlmenn.

Karlmenn elska konur vegna þess hversu klárar þær eru, ekki hversu stutt pilsið er.

heida@spegill.is
 
Höfundur: Heiða Þórðar
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur