logo

Nýtt útlit -hér er hún!

11 nóvember 2011 - Heiða Þórðar

Daman sem vann dekurdaginn okkar í Speglinum heitir Elísabet Kristjánsdóttir. Hún var að sjálfsögðu himinlifandi með daginn sinn, enda í góðum félagsskap Hemma og félaga hjá Modus. Bryndís Gyða sá um förðunina.
Á Facebook síðu Elísabetar mátti lesa eftirfarandi status eftir ævintýrið:
 
Ég er alveg alsæl eftir daginn og er komin með algjörlega nýtt útlit. Afraksturinn verður birtur á www.spegill.is fljótlega :D

Elísabet fyrir yfirhalningu
 
    
 
Hér farðar Bryndís Gyða konuna okkar
 
 
 
Ég spurði Bryndísi Gyðu út í förðunina:
 
Elísabet er ekki vön að vera mikið förðuð dagsdaglega svo okkur langaði að breyta örlítið til og gera hana svolítið „glamorous“. Ég notaði ljósan lit á augnlokið og skyggði hana svo með tveim mismunandi brúntóna augnskuggum. Til þess að fullkomna augnförðunina setti ég á hana blautan eyeliner og fallegan maskara. Á varirnar notaði ég ljósbleikan varalit og toppaði hann svo með glæru glossi til að gefa smá glans. Það skiptir miklu máli í förðun á skyggja andlitið vel og rétt og í skygginguna notaði ég sólarpúður á kinnbeinin og svo örlítinn bleikan kinnalit á kinnarnar sjálfar.
 
Bryndís Gyða er förðunarfræðingur að mennt og tekur að sér allskyns verkefni sem því tengjast. Gott er að panta með góðum fyrirvara hjá Bryndísi Gyðu þar sem hún er afar vinsæl, enda mjög flottur og góður fagmaður. 
 
 
 
 
 
Stórglæsileg Elísabet!
 
Hemmi hafði þetta að segja um hárið:
 
Við tókum strax eftir fallegri ljósri húð Margrétar og vildum ekki dekkja hana neitt of mikið en samt hafa hana í dýpri kantinum, þess vegna settum við fallegan súkkulaðibrúnan og bættum við fallegum gylltum strípum til að fá hreyfingu í hárið hennar. Við klipptum vel upp í hnakkann á henni til að hálsinn hennar virtist lengri, því að okkar mati var hárið alltof sítt en við vildum samt halda smá kvenlegri sídd að framan.
 
Og daman sjálf hún Elísabet:
 
Þetta var alveg frábært og ég var mjög ánægð með hvernig til tókst, bæði hvað varðar hárið, förðunina og myndatökuna. Það náðist ekki að fara í Nærveru að velja föt á mig fyrir myndatökuna, þannig að myndatakan var einungis fyrir ofan axlir, en ég fór í dag með vinkonu minni og fékk afbragðs þjónustu í versluninni Nærveru. Ég fór út með nokkrar æðislegar flíkur og er meira að segja búin að setja nokkrar aðrar á jólagjafalistann minn. Ég er mjög ánægð með nýja útlitið og þau voru mjög fagmannleg að öllu leyti. Ég naut hverrar mínútu.
 
Elísabet fékk gjafabréf frá versluninni Vintage að andvirði 10 þúsund. Og gjafakörfu frá Tigi. Veitingastaðurinn Silfur bíður Elísabetu út að borða með vini í stórkostlegan kvöldverð í fallegu umhverfi. Og þessar frábæru myndir af breyttu útliti tók snillingurinn Bragi Kort. Elísabet fékk myndatökuna að gjöf.
 
Takk allir sem lögðu sitt að mörkum og:
 
Elísabet, til hamingju!
 
heida@spegill.is
 
 
Höfundur: Heiða Þórðar
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur