Grætur þú eftir fullnægingu?
12 nóvember 2011 - Heiða Þórðar


Ég á alveg hreint stórkostlegar vinkonur. Hæ stelpur! Hitti eina þeirra fyrir stuttu og við fórum á flug, eins og alltaf. Það eru engin takmörk sett fyrir því, hvað við getum blaðrað um. Bara gaman.
Umræðan snerist um þetta fyrirbæri, kynferðislega fullnægingu. Vinkonan lýsti því sem svo að eftir slíkt stjörnuflóð með tilheyrandi svita, skjálfta og nánd, þá fylltist hún án undantekninga depurð. Og það einasta sem gaurinn hennar hefur að segja undir þessum kringumstæðum er einfaldlega; góða nótt elskan.
Stuttu síðar, rass og bak og hrotur. Kynin eru mismunandi, það er staðreynd.
Skilgreiningu á þessu fyrirbæri, sem við köllum fullnægingu, á enginn betri að mínu viti en Óttar Guðmundsson. Með góðfúslegu leyfi Óttars fékk ég að birta eftirfarandi úr bók hans:
Kynferðisleg fullnæging ku eiga margt sameiginlegt með dauðanum. Lífsorka og kynorka haldast í hendur eins og óaðskiljanlegir dansfélagar. Lífið er tilhlaup að dauðanum, rekið áfram harðri hendi af lífsorkunni. Samfarir eru atrenna að fullnægingu sem stjórnast af kynorkunni. Bæði líf og samfarir eru leiðir sem farnar eru að ákveðnu marki, sem er tilgangur fararinnar. Þegar áfangastað er náð blasir við tilgangsleysi þeirrar ferðar sem eyðir sjálfri sér. Í þeim dapurleika sem flestir finna fyrir eftir samfarir verður fánýti þeirra yfirþyrmandi. Á banastundinni verður tilgangsleysi lífsins æpandi. Í fullnægingu andartaksins er hægt að týna sjálfum sér, hverfa, samsamast í eina örstund í alsælu fullnægingar.
Óttar Guðmundsson. Listin að lifa -listin að deyja.
Ég hefði ekki getað orðað þetta betur sjálf hvað þá skilgreint. Hvernig á að útskýra svona fyrirbæri?
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





