Þarf að ræða þetta eitthvað?
15 nóvember 2011 - Heiða Þórðar

Ragnar Sveinn Magnússon er kennari við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Hann er með BA próf í íslensku ásamt kennslufræði frá HÍ og hefur starfað við FB frá því í janúar 1991, aðallega við íslenskukennslu. Hann er með bridgebakteríu og hefur orðið Íslandsmeistari og spilað nokkrum sinnum í landsliðinu, síðast nú í sumar á Norðurlandamóti.
Ragnar á þrjú börn og kærustu. Kíkjum á það, hvað hann hefur að segja um okkur konur:
Hvað finnst þér mest heillandi í fari kvenmanns?
Ég met heiðarleika, hreinskilni og sanngirni mest.
Hverju tekurðu fyrst eftir þegar þú hittir hana?
Tek fyrst eftir augunum og brosinu (þó brjóst og rass komi skammt á eftir).
Er eitthvað sérstakt við útlit kvenna sem heillar þig?
Konur hafa brjóst fram yfir okkur karlmenn og þau eru svo heillandi...
Eitt orð yfir veruna kona?
Konur eru yndislegar!
Magnaðasti íslenski kvenmaðurinn fyrr og síðar?
Hallgerður langbrók er mögnuðust og ég vildi gjarnan spjalla við hana.
Fallegasta konan og fellur seint af þeim stalli?
Núverandi kærasta er auðvitað fallegust en Angelina Jolie er líka rosaleg.
Hefur kona eitthvað í fari sínu umfram karlmann?
Konur eru að sjálfsögðu miklu fullkomnari en karlar, þær fæða af sér líf og geta síðan haft barnið á brjósti, þarf að ræða þetta eitthvað?
Fjölbreytni meðal kvenna, kostur? Eða viltu þær allar í sama form?
Konur eru eins mismunandi og þær eru margar og það er bara yndislegt.
Takk Ragnar frá okkur Speglastelpum, ekki síst fyrir það hversu fallega þú talar um kvenveruna.
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





