Beggi blindi
19 nóvember 2011 - Heiða Þórðar


Bergvin Oddsson missti sjónina á unglingsárunum. Honum er ekki fisjað saman þrátt fyrir þetta áfall. Hann gengur hnarreistur um lífið og tilveruna og lætur fátt stöðva sig. Hann er uppistandari, rithöfundur og útgefandi, auk þess að vera í háskólanámi. Spegillinn spjallaði við Begga...eða Begga blinda eins og hann kallar sig.
Við gefum Begga orðið:
Það er ómetanlegt að hafa einhvern tíma séð. Ég sé reyndar ekki alltaf allt gjörsamlega svart, því ég hef 2% sjón og geri greinarmun á degi og nóttu. Það skiptir mig líka mjög miklu máli að hafa áður séð og vita t.d. hvernig græna stöðvar 2 merkið lítur út hægra megin efst í horninu á sjónvarpsskjánum. Hvað heiður himinn er og hvernig Coca Cola vörumerkið lítur út.
Ég hef tvisvar fundið fyrir minnimáttarkennd
Ég grenja aldrei í koddann minn eða hugsa: Af hverju þurfti ég að missa sjónina en ekki einhver annar í Vestmannaeyjum eða á Íslandi? Það þýðir ekki að velta því fyrir sér, þá væri ég á vernduðum vinnustað, ætti ekki það sem ég á í dag; íbúð, fyrirtæki, fallegan dreng og yndislega eiginkonu.
Ég hef aðeins tvisvar sinnum fundið fyrir minnimáttarkennd og ekki liðið vel yfir því að vera blindur. Fyrst var það tveimur árum eftir að ég var búinn að missa sjónina: Ég var 17 ára og horfði upp á vinina taka bílprófið. Þá öfundaði ég félaga mína og vildi óska þess að hafa sjón.
Svo var síðara skiptið í síðustu viku þegar ég gifti mig þann 11.11.11. Ég gat ekki horft á konuna mína ganga inn kirkjugólfið og horft á hana brosa til mín. Á meðan hún sat á móti mér brosandi, grátandi og hlæjandi. Þá fann ég fyrir því að mig langaði virkilega til að hafa sjón í nokkrar sekúndur.
Þarf að hafa auga með drengnum
Við fluttum á Akureyri haustið 2008 vegna þess að Fanný Rósa konan mín var í hjúkrunarfræðinámi. Oddur Bjarni fæddist í lok mars 2009 og allt gekk vel. Um haustið þegar Rósa fór í skólann aftur og þurfti að fara í verknám og taka átta tíma vaktir lenti það á mér að vera með litla kút. Hann var ennþá of ungur til að vera hjá dagmömmu og við Rósa erum hvorug frá Akureryi og eigum þar af leiðandi enga fjölskyldu þar og fáa vini.
Þetta haust var það mér oft virkilega erfitt að hugsa um lítið barn, staurblindur á nýjum stað í ókunnugu umhverfi og þekkja fáa. Í þokkabót var litli kútur ennþá á brjósti og saknaði mömmu sinnar virkilega mikið.
Ég stappaði oft niður fótum, grét og þrammaði um gólfin með Odd Bjarna á öxlinni og taldi mínúturnar þar til Rósa kæmi sér heim. Svo fór maður í smá göngu til að anda og pústa og kom svo aftur heim í faðm fjölskyldunnar.
Lætur fötlunina há sér eins lítið og mögulega hægt er
Beggi segist vera virkur þjóðfélagsþegn og hann lætur ekkert stöðva sig þrátt fyrir sjónleysið. Hann fluttist 16 ára gamall til Reykjavíkur frá Vestmannaeyjum, leigði sjálfur íbúð og bjó einn á meðan hann stundaði nám í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Beggi gaf út sína fyrstu bók árið 2008 sem heitir Allt fer úrskeiðis og er unglingaskáldsaga. Bókin kom út sama dag og Beggi útskrifaðist úr MH.
Hann skrifaði svo reynslusögu sína um það hvernig er að eiga von á barni og bera ábyrgð á ósjálfbjarga einstaklingi án þess að sjá. Bókin heitir Að heyra barnið sitt vaxa.
Síðasta ritverk Begga eru fimm barnabækur um Magga mús. Bækurnar eru nýkomnar út. Þær eru ætlaðar yngstu lesendunum og eru til sölu út um allt land. Beggi gefur sjálfur út bækurnar sínar, ásamt bókum annarra höfunda. KSF útgáfa er í eigu blinda mannsins.
Beggi stundar nú nám í stjórnmálafræðideild HÍ og hlustar á allar námsbækurnar í tölvunni sinni. En tölvan les allt sem Beggi þarf að vinna þar.
Stefni að því að verða þingmaður
Það hefur alltaf verið mitt markmið að komast inn á Alþingi. Ég byrjadi að hafa afskipti af stjórnmálum áður en ég fermdist. Ég var byrjaður að skrifa greinar í bæjarblaðið heima í Eyjum og mætti á minn fyrsta landsfund hjá samfylkingunni árið 2001. Þá var ég búinn að vera blindur í tæpt hálft ár.
Ég hef setið í framkvæmdastjórn samfylkingarinnar síðan vorið 2009 og elska að taka þátt í stjórnmálum og láta til mín taka í málefnum fatlaðra og öðrum velferðarmálum.
Það er langhlaup að vera þátttakandi í pólitík og maður þarf að vera duglegur að sækja fundi, heyra í fólki um allt land og vera tilbúinn að hlusta, segir Beggi blindi uppistandari, rithöfundur og útgefandi að lokum.
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





