Ískerti Kertagerð
20 nóvember 2011 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Hann heitir Guðni Guðnason og byrjaði að framleiða kerti sem hobbý. Nú er framleiðslan að stækka til muna, því Guðni fann réttu gerðina sem gengur vel að selja til ferðamanna sem sækja landið heim.
Þessa dagana vinnur hann að nýrri gerð kerta fyrir sumarið en þeir stjakar munu kallast sjávarstjakar. Hluti vinnunnar er að safna efninu að sér, en það kemur víða að. Í sumar var efni sótt allt frá Hornafirði og allar götur inn í Faxaflóann.
Hugmyndir Guðna fæðast flestar úti í náttúrunni, sjávarstjakinn varð til að mynda til við Garðskagavita í hífandi roki og brimi.
Í upphafi var Guðni að gera hefðbundin kerti fyrir ferðamenn og fermingar og slík tækifæri. Það breyttist þegar hann byrjaði að blanda saman sandi, ösku og grjóti og fann þannig nýja aðferð til að nota í kertastjakagerð.
Myndirnar tala sínu máli, afar skemmtileg gjafavara og einstakt meðal fyrir kertasjúklinga. Við elskum að lýsa upp skammdegið með kertaljósum.
Kíktu á heimasíðuna og svo eru Ískerti á facebook líka.
Höfundur: Steinunn Fjóla Jónsdóttir
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





