logo

Augun tala

29 nóvember 2011 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir

Ég er að ganga frá möppunum. Dagur á enda og ég hlakka til að koma heim til mín. Sparka af mér skónum og slaka á. Ég finn að einhver er að fylgjast með mér og sný mér við.
Hann er yngri en ég. Ég hef svo sem vitað af honum. Gefandi mér auga. Augnaráð lýgur ekki. En ég er vönd að virðingu minni, hef ekki gefið eftir. Þótt hann sé fullkomlega flottur þessi strákur. Hvað ertu að gera? Segir hann og ég reyni að brosa bara. Ganga frá. Finn vandræði í uppsiglingu. Dyrnar eru lokaðar. Ég tylli mér á borðið og spyr á móti. En þú, hvað ert þú að þvælast?
 
Hann kemur nær og segir ekki neitt. Stendur bara fyrir framan mig og dáleiðir mig með augunum. Þau öskra á mig; hann er ekki kominn til að spjalla! Ég naga vör mína að innan. Eiginlega í pattstöðu og viðurkenni að mig langar skelfing til að kyssa þessar varir hans. Tilfinningin færist upp til augna minna og ég sendi frá mér merki. Þá kemur hann nær. Setur höndina undir höku mína og leggur varirnar við mínar. Ofurlétt, rétt snertir. Og mig kitlar í meira. Þegar hann horfir í augu mér, bleyti ég varirnar. Viss um að ég eigi von á ýmsu. Og hann kyssir mig fast. Ég tek á móti. Algjörlega fallin.
 
Meðan tungan gælir við varir mínar, finn ég að hann hneppir frá skyrtunni minni. Niður að streng á pilsi og opnar hana. Klæðir mig úr. Ég er í hvítum brjóstahaldara. Hann lyftir honum upp yfir brjóstin og horfir á mig. Hef séð hann horfa áður. Bara ekki á mig bera. Ég finn að það æsir mig og geirvörturnar harðna. Og hann snertir þær með vörunum. Það er ekki aftur snúið. Ég finn það með öllum líkamanum. Hann smeygir hönd undir pilsið mitt og dregur þær niður; sokkabuxurnar. Ég leysi beltið hans, töluna og rennilásinn. Hann færir g-strenginn til hliðar og mjakar nærbuxunum sínum niður á læri.
 
Við erum á borðinu mínu. Sjúkleg þörfin sem blossar milli okkar. Hvernig ég fer að því að vinna við þetta sama borð, daginn eftir, veit ég ekki. Veit bara að ég er að gera það fyrir þennan strák. Með þessum strák. Útkoman er ávísun á áframhald.
 
steina@spegill.is
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur