logo

Kvenleg, brosandi með útgeislun

5 desember 2011 - Heiða Þórðar

Ívar Örn Þórhallsson svarar nú spurningum okkar um KONUNA. Ívar er ljósmyndari farsæll, og er hægt að skoða verkin hans hér.
Hvort sem um er að ræða auglýsingamyndatökur, tökur fyrir leikhús, „nude“ , bumbumyndir, barna, paratökur, eða hvað svo sem hugur þinn stendur til, hafðu samband og fáðu fast verðtilboð hjá Ívari: listamenn@gmail.com.
 
Stelpur; Ívar er single, sætur og skemmtilegur ;)
 
Þetta hafði hann að segja um okkur:
 
Hvað finnst þér mest heillandi í fari kvenmanns?
 
Húmor fyrst og fremst.
 
Hverju tekurðu fyrst eftir þegar þú hittir hana?
 
Það er svo misjafnt og fer bara eftir hverri og einni, útgeislun og hvort hún sé brosmild eða ekki.
 
Er eitthvað sérstakt við útlit kvenna sem heillar þig?
 
Kvenleikinn.
 
Eitt orð yfir veruna kona?
 
Yndislegar.
 
Magnaðasti íslenski kvenmaðurinn fyrr og síðar?
 
Erfitt að velja einhverja eina, svo margar sem eru svo magnaðar.
 
Hvaða konu myndirðu vilja hitta, til að eiga við hana samræður...ekki samræði?
 
Marilyn Monroe.
 
Fallegasta konan og fellur seint af þeim stalli?
 
Er enn að bíða eftir að hitta hana.
 
Hefur kona eitthvað í fari sínu umfram karlmann?
 
Frekar margt og karlmenn hafa margt umfram konur.
 
Fjölbreytni meðal kvenna, kostur? Eða viltu þær allar í sama form?
 
Fjölbreytni er kostur, ég t.d. fell aldrei fyrir því sama í fari kvenna, það sem fer einni er bara ekki að fara annarri.
 
Ef konur eru konum verstar, hvað eru karlar?
 
Þeir eru bara vesen.
 
Hér má sjá lítið sýnishorn af tökum Ívars og hversu fjölhæfur og góður hann er í 5 mismunandi tökum:
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
heida@spegill.is
 
Höfundur: Heiða Þórðar
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur