Slétt skipti
10 desember 2011 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Ég væri sko til í að detta í deitin. Bara svona kitlandi skemmtileg sem enda á ýmsa vegu. Láta strjúka mér þar til ég mala. Hvort er skemmtilegra? Ástin eða lostinn?
Ástin er gegnumgangandi í huga mér sem endalaus rómantík og rólyndissæla. Svona tilfinningadráttur, kannski með tárum og væmni. Og svo æsast leikar inn á milli í ástinni. Við verðum full af ástríðu og leyfum okkur að missa tökin. Sem er gott. Þangað til ástin rekst á veggi. Hún á það jú til að særa. Rífast og svekkja sig. Sem eðlilegt er því hún er nátengd skuldbindingum á borð við samband, sambúð og hjónaband. Oft meira en að segja það.
Æ, ástin er góð fyrir sig. Og ég átti hana um tíma. Fannst það sweet. Sætt og súrt í bland. En þessi tegund af ást er nú komin ofan í skúffu. Lok og læs. Og ég tek fram lostann. Þarf jú að bregða mér á bak endrum og sinnum. Engar rósir. Ekkert undir rós. Bara hreint og klárt samningsatriði. En engar undirskriftir og ekkert svekkelsi.
Fyrir mig og fyrir þig. Slétt skipti. Ertu til? Vera má að einhver taki andköf við þessar pælingar. En ég stend og fell með sjálfri mér og hef á því óbilandi trú að allir hafi reynt við hann lostann og fallið fyrir honum oftar en ekki.
Það er spennandi að ákveða að skreppa með honum heim. Herra Losta. Kannski ferðu í bíl, kannski er stutt að labba. Breytir engu; þú munt flissa hið innra alla leiðina. Svo spennandi. Ekki neitt sem einhver annar sannfærði þig um að væri möst. Bara eitthvað sem þú leyfðir að gerast. Þig kitlaði. Og vilt láta klóra! Kannski eftir fína máltíð. Kertaljós sem speglast í augunum. Þau hugsa bara eitt; rómantík er tík sem segir sex.
Svo þegar á hólminn er komið, máttu vera bara þú. Eins og þér finnst þú sexý. Og trúðu mér; þú ert einmitt það. Þegar þú þarft ekki að reyna að vekja meira en drifkraftinn. Reisa mastur. Sjálfstraust og einhliða stefna með eitt að markmiði, hefur þessi áhrif. Sjúklega seiðandi kvenmaður. Hún veit hvað hún vill og hún ætlar að fá það. Kveikir klárlega í kestinum.
Vellíðan af ást er af öðrum toga. Hún má vera hversdagsleg í ljómanum og kemst upp með það. Lostinn lokar á lummulegt og kveikir á öllum sírenum. Ekkert hversdagslegt við það. Enda flugeldasýning í boði. Ekki koss á ennið fyrir framan sjónvarpið. Gefum okkur að gæinn geti þjónað.
Mundu bara að láta ekki brosið elta þig. Ekki augun blikka þig í einrúmi. Bara langa þegar það er í boði. Ekkert hugsi hugs. Það kann bara vondri lukku að stýra. Dettu nú ekki í hversdagsbrunninn. Sem heitir langar í meira. Við erum enn í lostanum. Better safe than sorry. Kaldhæðin sjóðandi heit slétt skipti.
steina@spegill.is
Höfundur: Steinunn Fjóla Jónsdóttir
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





