logo

Mandarína

23 desember 2011

Í hugum margra eru mandarínur nátengdar jólunum en það er þó ekki svo að þær séu aðeins fáanlegar um það leyti árs. Mandarínur eru seldar allt árið um kring en vissulega verður meira um þær í kringum jólin. Ástæðan er sú að þá kemur á markaðinn fyrsta uppskera frá Spáni sem venjulega þykir vera sú besta, en uppskerutími mandarína á Spáni er frá nóvember til apríl.
Mandrínur eru fáanlegar í verslunum á Íslandi allt árið um kring. Þær verða bara meira áberandi í kringum jól. 
 
 
 
Á öðrum árstímum eru keyptar inn mandarínur frá öðrum löndum þar sem uppskera er hverju sinni. Eftir að tímabilinu lýkur á Spáni taka Marokkó og Egyptaland við og þaðan koma mandarínur fram í maí eða júní. Frá júní og fram í nóvember eru fluttar inn mandarínur frá Argentínu eða Suður-Afríku.
 
Þess má til gamans geta að samkvæmt upplýsingum frá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna er Kína það land sem framleiðir langmest af mandarínum, klementínum og tangerínum. Árið 2007 var uppskeran þar rúmlega 15 milljónir tonna sem samsvarar rúmlega helmingi heimsframleiðslunnar. Spánn kemur næst á eftir Kína með um tvær milljónir tonna árið 2007. (Heimild: Vísindavefurinn.is)
 
heida@spegill.is
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur