logo

Litla Flugan

28 desember 2011 - Anna Birgis

Hún Jórunn Dóra er Litla Flugan. Einstaklega flott hönnun og svo eitthvað í mínum stíl. Öðruvísi, frumleg og ,,daring” ef ég má svo að orði komast.
 
 
 
 
Jórunn var alin upp í heimasaumuðum fötum:
 
Það var ekkert farið í búð og keypt, heldur skoðað og svo fór mamma með mér í efnabúðir og við völdum efni og hún saumaði og ég hjálpaði til, eins mikið og ég gat. Þaðan er áhuginn kominn.
 
 
 
 
 
 
Jórunn er lærður snyrtifræðingur úr Fjölbraut í Breiðholti. Hún fann sig ekki í því og fór að vinna í vefnaðarvöruverslun og svo á hönnunarverkstæði. Hún fór á allskyns námskeið í handavinnu og af áhugamálunum einum saman stofnaði hún Litlu Fluguna.
 
Vörurnar hennar undir merkinu Litla Flugan fást á eftirfarandi stöðum:
 
Nordica Hilton hótel
Grand Hótel
Kraum
Hótel Saga
 
Og svo er hægt að koma á vinnustofuna hennar heima og skoða og versla.
 
 
 
 
Ég vinn úr leðri, skinni (kálfa, dádýra, refa og kanínu), fiskiroði (lax, hlýra, skötu) og slönguskinni. Innblásturinn kemur eiginlega með hráefninu. Ég fæ flott skinn og sé þá yfirleitt eitthvað sem ég vil gera úr því.
 
 
 
 
 
 
Jórunni finnst að efla mætti kennslu í öllu handverki og passa upp á gamla og góða handverkið til þess að það glatist nú ekki í allri þessari nútímavæðingu.
 
En Jórunn, uppáhalds hönnuður?
 
Stella MacCartney, ekki spurning.
 
Uppáhalds flík Jórunnar þessa stundina er pels sem hún keypti og ætlaði að gera úr töskur, en hann er svo hlýr í kuldanum núna að hún tímdi ekki að búta hann niður. En að gera upp á milli uppáhalds muna sem hún hefur hannað:
 
Vó, ég held ég geti bara ekki gert upp á milli, en í augnablikinu eru það litlar kúlutöskur úr minnki og ref.
 
Frítíminn fer í ræktina en einnig á fjölskyldan kot í sveitinni og finnst afar gott að fara þangað og hlaða batteríin.
 
 
Kíkið á frumlega og fallega hönnun sem ég mæli hiklaust með.
 
Litla Flugan er á Facebook.
 
 
Höfundur: Anna Birgis
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur