Cool Design
29 desember 2011 - Anna Birgis
Sigrún Einars er snillingurinn á bak við Cool Design. Afar töff hönnun fyrir alla. Ég auðvitað, eins og alltaf, forvitnaðist um hana og hennar merki.
Ég hef alla tíð haft gaman af að teikna. Var síkrotandi. Góð vinkona mín varð síðar minn örlagavaldur á þessari braut og hvatti mig óspart til að sækja um í Parsons School of Design og þaðan útskrifaðist ég sem grafískur hönnuður. Eftir 20 ár í því fagi langaði mig að þróa mig út í vöruhönnun og fór á Listnámsbraut Iðnskólans í Hafnarfirði í þrjú ár. Verkstæði skólans eru mjög flott og flinkir kennarar sem gefa manni tækifæri á að ígrunda allar sínar útfærslur og maður lærir að smíða úr málmi, tré og plasti. Fyrir vöruhönnuð er algjörlega nauðsynlegt að þekkja möguleika og útfærslur hluta með ólíkum efnum.
Fyrir þremur árum gerði ég diskamottur Errós á endurunninn pappír í formi málaraspjalds og hafa þær verið til sölu á ýmsum stöðum. Allar aðrar vörur eru til sölu í minni eigin vefverslun www.cooldesign.is.
Úr hvaða efnum ertu aðallega að hanna og hvernig vörur?
Ég hanna nytjahluti fyrir heimilið með listrænu ívafi, húmor og litagleði. Ég legg áherslu á nýtni hvers efnis sem og umhverfisvæni sem birtist m.a. í því að nota endurunninn pappír og pappa. Allar vörur eru léttar og ekki rúmfrekar. Hver hlutur hefur litla sögu eða ákveðna hagkvæma hugsun að baki og langan hönnunarferil. Samantekin menntun mín og reynsla kemur þarna að miklu gagni.
Á vefverslun minni segi ég frá og útskýri hvað liggur að baki hverjum hlut. Með því vil ég skapa persónulega tilfinningu sem myndast þegar hönnuður hittir viðskiptavini sína.
En hvað finnst þér um kennsluna í grunnskólum; handavinnu og annað í þeim dúr, ertu hlynnt því að setja ætti meira val inn í grunnskólana svo krakkar kynnist betur hönnun og læri að vinna úr hinum ýmsu efnum?
Já, alveg tvímælalaust því öll slík kennsla er ekki bara fyrir listræna heldur gagnast hún líka raungreinum eins og t.d. verkfræði. Mér finnst grunnskólakerfið á mörgum sviðum barn síðustu aldar en ekki hugsun framtíðar. Það er þörf á algjörri endurhugsun og leiðbeina krökkum að hugsa út fyrir rammann og verkkennsla af öllu tagi mætti vera miklu meiri.
Það er margt að gerast í hönnun og margir mjög flinkir vöruhönnuðir. Fagheitið ,,hönnuður” finnst mér kannski notað ansi frjálslega og ber því miður á að lítil virðing sé borin fyrir höfundarrétti. Að baki vel hannaðri vöru liggur mikil og fagleg vinna og ef kennd væri t.d. meiri lista- og hönnunarsaga í skólakerfinu myndi lærast að meta hvers virði góð hönnun og handverk eru sem væri almennt til góðs.
En áttu þér uppáhalds hönnuð?
Þeir eru margir og frá ýmsum tímabilum og af ólíku þjóðerni. Má nefna hina klassísku dönsku hönnuði frá miðri síðustu öld. Þar sem úthugsuð hönnun og fágað handverk renna saman, nú hollenskir hönnuðir hugsa gjarnan út fyrir rammann og hafa rutt brautina fyrir hönnun í endurvinnslu. Ítalskir hönnuðir eru litríkir og með húmor og mér finnst finnskir hönnuðir hafa náð langt í að sameina marga framangreinda þætti. Hönnun þeirra er einstök. Almennt séð hafa einkunnarorð Steve Jobs- Apple ,,think different” alltaf höfðað til mín.
En ef þú værir ekki að gera það sem þú gerir í dag, hvað gætir þú séð þig vera að vinna við?
Ég hef mikinn áhuga á mannlegum samskiptum, er t.d. lærður leiðsögumaður og ég gæti vel hugsað mér að sameina áhuga minn á leiðsögn og hönnun með því að vinna við fyrirlestra og kennslu af ýmsu tagi.

.jpg)

Uppáhalds hlutur sem þú hefur hannað?
Mér finnst plexigler kærleiksskálin mín hafa tekist vel, bæði í hugsun og framkvæmd. Þar finnst mér ég hafa náð að ,,hugsa öðruvísi” og menntun mín sem grafískur hönnuður og útfærsla sem vöruhönnuður renna þarna saman. Það gladdi mig líka að Yoko Ono þáði ensku útgáfuna af skálinni þegar hún var hér í fyrra að halda upp á afmæli John Lennon. Í framhaldinu hef ég svo þróað ruggandi skálaformið og smíða núna líka sjálf skálarnar Dugga-dugg sem er formbeygður, spónlagður og endurunninn pappi. Mjög umhverfisvænar.
Þú finnur Cool Design á netinu.
Og á Facebook.
Mæli hiklaust með þessari vöru. Kíkið og sjáið úrvalið .
Höfundur: Anna Birgis
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





