Stjörnur og kossar
2 janúar 2012 - Heiða Þórðar


Rakst á þessa vitleysu og datt í hug að deila þessu með ykkur. Hvernig kyssir fólk ef mið er tekið af því í hvaða stjörnumerki það er? Passar þetta miðað við þitt stjörnumerki? Þetta er auðvitað aðeins til gamans enda stal ég þessu og skammast mín lítið fyrir það.
Hrútur: Þínir kossar eru stutt ástríðufull ánægja. Koma snöggt og vara jafn stutt...
Naut: Þínir kossar sitja eftir, eru meðvitaðir, hjartanlegir og geta haldið áfram og áfram...
Tvíburi: Þínir kossar eru slitróttir vegna fliss, bross og hlægilegra uppgötvana...
Krabbi: Þínir kossar eru heitir og og þú leggur þig fram, og vilt aldrei hætta...
Ljón: Þínir kossar eru villtir og óheftir, bitið og klórað og þú ætlast til hróss fyrir frammistöðuna...
Meyja: Þínir kossar eru svo léttir og snyrtilegir að elskuhugi þinn verður aðeins var við þá að þeim loknum...
Vog: Þú hefur of miklar áhyggjur yfir því hvort þú ert andfúl/l til að njóta kossins...
Sporðdreki: Þú sleppir kossinum og skellir þér í...
Bogmaður: Kossar þínir koma á óvart, ekki fyrir fram planaðir og skilja eftir löngun í meira...
Steingeit: Kossar þínir eru áköf augnablik sem þú notar til að losa stress dagsins ...
Vatnsberi: Kossar þínir eru blautir og subbulegir og þér hættir til að vera með augun opin...
Fiskur: Koss þinn lætur elskuhugann fá stjörnur í augun og er ástleitinn og óendanlegur...
Þá vitum við það. Greinilega best að spyrja fyrst í hvaða merki viðkomandi er áður en byrjað er á kossaflangsinu...
Hvílík þvæla....en skemmtileg engu að síður.
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





