logo

Iceglass -Icelandic glass art

7 janúar 2012 - Anna Birgis

Þau Guðlaug og Lárus hófu rekstur á sameiginlegu verkstæði í kringum árið 2000 og það er upphafið að Iceglass.
Guðlaug hafði þá lært í listaskóla Álaborgar og seinna Norrsundsby daghojskole, sem leiddi hana út í glerblástur:
 
Ég (Lárus) byrjaði mitt ferli á verkstæði þar sem hún vann ásamt fjórum öðrum glerblásurum á vesturströnd Danmerkur og eitt leiddi af öðru.
 
Ég lærði af fagfólki sem hafði langa reynslu að baki. Ég held það skapi ákveðið sjálfstæði sköpunarlega að nema ekki í hóp eins og gerist í hefðbundnu námi við glerblástur. Á þann hátt sem ég lærði fékk ég mismunandi vinkla á ferlið og hvernig maður nálgast það. Guðlaug lærði sumsé í listaskóla Álaborgar og einnig af reyndu fólki. Annars er það svo heillandi við gler að maður er aldrei útlærður. Efnið býður upp á svo mikið og tæknilega heldur maður áfram að þróast og breytast.
 
 
 
 
 
 
Vörurnar þeirra er hægt að nálgast á ýmsum stöðum: Verkstæðið er opið gestum og gangandi. Gallerí L51 á Laugavegi 51 hefur breitt úrval af því sem þau eru að gera og einnig er varan fáanleg í Islandia í Kringlunni og Rammagerðinni.
 
Það er enginn einn munur sem er vinsælli en annar. Ég held að það sé mjög fjölbreytilegt hvað heillar fólk og er það af hinu góða.
 
Það er tvímælalaust góður meðbyr með okkar hönnun. Það er styrkleiki að starfa í eigin landi þegar kemur að hönnun og handverki. Það er aukin virðing fyrir orginal listhandverki eftir áralanga innspýtingu af gámavörum frá Kína og þess háttar mangi.
 
 
 
Lárus segir að listinn yrði mjög langur ef telja ætti upp alla uppáhalds hönnuði þeirra.
 
Ég er mjög hrifinn af nálgun Chihuly á gler, Bertil Vallien hefur gert mjög merkilega hluti. Mér finnst Kosta Boda einnig hafa réttan vinkil á sig, tekur áhættur og dvelur ekki eingöngu við klassíkina. Annars fæ ég mikið af mínum hugmyndum í gegnum skúlptúr og myndlist.
 
Ég spurði hvað gert væri þegar frítimi gæfist og svarið var stutt og laggott:
 
Hvaða frítími?!
 
 
 
 
 
Það er hægt að fá að koma til þeirra og fylgjast með glervinnslu. Verkstæðið í Grófinni er opið frá 11 – 18 og er alltaf opið gestum og gangandi. Vinnslan í glerinu er flesta daga en ekki alla.
 
Við fáum talsvert af hópheimsóknum þar sem hópar bóka heimsókn, en annars er oftast hægt að sjá hvernig glerið er mótað og blásið.
 
Þú finnur Iceglass á Facebook.
 
Kíkið á þessa fallegu hönnun og jafnvel bókið heimsókn til þeirra og fylgist með glerblæstri.
 
Höfundur: Anna Birgis
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur