Skugga Donna
8 janúar 2012 - Anna Birgis
Skugga Donna er merkið hennar Huldu Drafnar Atladóttur. Hulda er alin upp á Selfossi en eftir stúdent fór hún að leita sér að einhverju að gera. Hún prófaði sagnfræði sem gekk ekki, svo hún fór í Iðnskólann í Reykjavík í klæðskurð til að reyna að læra að sauma. Það gekk vel en hún var óróleg þar eftir eitt ár og sótti um í Listaháskólanum þar sem hún kláraði BA í fatahönnun 2009.
Ég fór út í hönnunina vegna þess að mér fannst gaman að búa til fallegar flíkur en ég sá ekki fyrir mér að ég myndi elska að vera klæðskeri. Ég var hundleið á öllu sem var í búðum og mig þyrsti í meiri fjölbreytileika og ákvað að hætta að væla og fara að gera eitthvað í því.
Vöruna hennar Huldu undir merki Skugga Donna er hægt að finna í versluninni The Collective of Young Designers eða Leynibúðinni eins og farið er að kalla hana á Laugavegi 21.
Efnin sem Hulda hannar mest úr eru ofin ull, bómull og flauel og prjónaðar ullarblöndur líka. Ég endurvinn efni líka eins mikið og ég get.
Hvaðan fær fatahönnuður sinn innblástur?
Ég fæ mikinn innblástur úr bíómyndum og ljósmyndum, horfi áfram og afturábak þ.e. á framtíðarsýnir í alskonar myndmáli og blanda við þessu gamla rómantíska sem er oft tímafrekt að gera. Skugga Donna er enn í mótun, hún elskar að skera sig úr, vil hafa þokka og dulúð en hún mun verða aðeins framtíðarlegri smátt og smátt.
Huldu finnst frábært að við skulum eiga svona mikið af hönnuðum hérna á Íslandi:
Mér finnst æðislegt að greinin sem ég er búin að læra og vil leggja fyrir mig er að verða stærri og veigameiri og viðurkenndari en hún hafði verið.
Uppáhalds hönnuður?
Gareth Pugh og svo er ég alltaf spennt að sjá hvað er að koma frá Balenciaga og Miu Miu.
Uppáhalds flík er alltaf það nýjasta sem verið er að vinna í eða var verið að klára. Ég á einn blómakjól sem er og verður sígildur.
Hvað er svo gert í frítímanum?
Bara þetta venjulega, sinna lífinu.
Skugga Donna er á Facebook.
Kíkið á fallega hönnun, ég mæli með henni.
Höfundur: Anna Birgis
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





