Heimsendir 2012
9 janúar 2012 - Heiða Þórðar

Þetta er árið sem flestir líta björtum augum. Við höfum nú þegar kvatt hið gamla, um leið og við höldum kokhraust inn í hið nýja, ferska og fjallmyndarlega ár 2012. Á nýársdag varð mér hugsað til Mayan manna en trú þeirra og spá er sú að heimsendir sé í nánd. Ég get ekki ímyndað mér hvernig þetta blessaði fólk ætlar að lifa árið. Sjálfsagt eins og hver dagur sé dýrmætari en áður. Sem er fallegt og flott að tileinka sér dag hvern, burtséð frá heimsendi í nánd eða ekki.
Það eru ekki mörg ár síðan farið var að kynna endalok alheimsins. Spádómurinn var settur fram af mörgum fræðimönnum svokölluðum Mayan. Fræðimenn hafa rannsakað dagbók þeirra síðastliðin ár, en dagatalið Mayan nær allt aftur um 5125 ár. Þrátt fyrir að dagbókin leiði til margra og mismunandi túlkana, er ein túlkun úr þeirri ágætu bók sú allra vinsælasta meðal fólks í dag. Það er trú manna á því að hringrás heimsins eða tilvist mannkyns muni enda 21. Desember 2012.
Er heimurinn virkilega að farast á þessu ári?
Til að ná einhverjum skilningi á þessum spádómi, verður fyrst að átta sig á því að á miðju dagatalinu, munu vera staðreyndir sem valda þessum deilum manna á milli. Heimsendir, eða ekki heimsendir.
Tiltekin hringrás hófst samkvæmt dagatalinu 13. ágúst 3114. Það þýða einfaldlega endalok og upphaf á enn nýrri hringrás þetta árið. Þetta mun því vera mikilvægur tímapunktur að ganga í gegnum og samkvæmt Mayan fólki, heimsendir í lok árs.
Ekki liggur fyrir skýr skilgreining á því, hvernig jörðin muni nákvæmlega enda eða á hvaða hátt það gerist. Einhverjir hafa sagt að sálir handan þessa heims muni sjá um að hreinsa til hjá okkur á meðan aðrir telja að eyðing jarðbúa verði af völdum náttúruhamfara.
Aðrir fræðimenn sem rannsakað hafa spádóminn, vilja meina að til sé lengra dagatal og hrópar þeirra rödd hátt yfir heimsbyggðina í upphafi þessa árs, til að reyna að stemma stigu við hræðslu fólks almennt og um leið að gera þessa langtíma stjarnfræðilegu og niðurdrepandi spá Mayan fólksins ómerka.
Heimsendir eða ekki. Lifum lífinu til fullnustu sérhvern dag.
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





