Þitt eigið mýkingarefni
15 janúar 2012 - Heiða Þórðar

Með því að búa til þitt eigið mýkingarefni, nærðu að spara allt að fjórðung ef mið er tekið af því að þú verslar nánast án undantekninga í lágvöruverslunum. Annars meira...
Hér er allt sem þú þarft til að búa til þitt eigið:
Eitt sápustykki (að eigin vali).
Eitt box af hreinsunarsóda (hægt að fá í öllum betri hreinsunum) einnig virkar matarsódi.
Fimm lítra fötu með loki (eða fötu sem tekur meira en 15 lítra).
Ilmefni – að eigin vali – þarf þó ekki.
Þrjá lítra af vatni.
Mælikönnu.
Stóra skeið til að hræra í blöndunni með.
Hníf.
Hefjumst handa...
Settu fjóra bolla af vatni í pott og hitaðu alveg þar til lögurinn nær næstum því suðumarki. Á meðan þú bíður er sniðugt að taka fram hnífinn og byrja að „raka“ sápurnar í lengjur og setja í vatnið smátt og smátt. Uns bráðnar. Passaðu að sjóða ekki blönduna með því að halda hitastiginu hæfilegu á meðan þú bætir sápunni í, smátt og smátt.
Settu því næst þrjá lítra af vatni í fötuna. Settu sápublönduna saman við og hrærðu þar til þú nærð fram léttri froðuáferð. Bættu við hreinsunarsódanum. Haltu áfram að hræra í eina til tvær mínútur. Ef þú kýst að nota ilmefni, bættu þeim saman við. Hærðu enn meira. Látið allt standa yfir nótt og kólna áður en þú setur þennan ferska og ódýra mýkingarlög í þvottavélina.
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





