Vill nýja Endurreisn á Íslandi
17 janúar 2012 - Heiða Þórðar


Ein sérstaða Nikhils sem listamanns er að á öllum hans myndum eru allir með lokuð augun. Með því vill hann leiða athygli áhorfandans sjálfs inn á við og til sjálfsins.
Hann lítur svo á að það sé skylda listafólks í samfélaginu að skyggnast lengra en til þessa áhrifavalda sem vilja stjórna samfélagsvitund okkar. Hlutverk listafólks sé að vísa örlítið veginn með skýrum en óbeinum hætti, og nota sjónarhorn sem veitir fólki innblástur og von varðandi framtíðina. En það er einmitt þessi nálgun við viðfangsefnið sem hefur opnað Nikhils dyr inn í íslenskt menningarlíf á þessum tímum mikilla sviptivinda í íslensku þjóðfélagi.
Ég hvet þig til að skoða heimasíðu listamannsins, því hér að neðan getur aðeins að líta örlítið sýnishorn af mögnuðum verkum hans, sem að auki eru í lélegum gæðum. Biðst forláts á því, en það sem mér persónulega finnst mestu um vert varðandi listsköpunina og manninn sjálfan en það eru heilbrigð lífsviðhorfin og eldmóður til Endurreisnar okkar ástkæra lands..
Hér er slóðin; . http://nikhilkirsh.com

Takið eftir augunum....

Kunnugleg andlit?

Erótísk og sjóðandi heit...

Geggjuð mynd.

Stórkostleg litasamsetning.





