My week with Marilyn - kynning
18 janúar 2012 - Heiða Þórðar


Frumsýnd 6. janúar 2012 - Tegund: drama - Lengd: 99 mínútur
Myndin er tilnefnd til 3ja Golden Globe verðlauna, sem besta mynd ársins í flokki gaman- og söngmynda og bæði Michelle Williams og Kenneth Branagh fengu tilnefningu sem bestu leikarar ársins.

Hér á eftir birtist hluti af gagnrýni Tómasar Valgeirssonar blaðamanns og ritstjóra um myndina. En hann gaf henni sex stjörnur af tíu mögulegum:
Reyndar eru skemmtilegustu kaflarnir í fyrri helmingnum en kannski er ég bara svona háður hobbýinu mínu að mér fannst allt sem gerðist á tökusettinu vera áhugaverðara en það sem gerðist utan þess. Ég er (augljóslega?) mikill áhugamaður um kvikmyndagerð, en reyndar er ég líka unnandi Monroe, og það olli mér miklum vonbrigðum hvað myndin varð sífellt bragðdaufari eftir því sem leið á hana. Hún er voðalega mikið á öruggu, dúnmjúku hliðinni og á rúmum 90 mínútum er ekki mikið pláss eftir fyrir mikla dýpt eða huggulegt drama.
Mín vegna hefði handritið alveg mátt vera innihaldsríkara, ef ekki bara til að gefa aukapersónunum aðeins ríkulegri prófíla. Ég hafði nefnilega nokkuð gaman af flestum leikurunum, sérstaklega þeim Kenneth Branagh (í hlutverki Sir Laurence) og Judi Dench. Branagh er dásamlegur þrátt fyrir tvívíðan karakter, ef svo má segja. Svo stöku sinnum glyttir í Juliu Ormond og Emmu (frú Hermione sjálfa) Watson, en báðar fá varla meira en uppstækkuð gestahlutverk þegar þær áttu svo miklu betra skilið.
Eddie Redmayne er að vísu fínn sem Colin Clark en ekkert framúrskarandi. Hann er viðkunnalegur, sakleysislegur og maður skilur auðveldlega hvers vegna hann velur Williams fram yfir Watson snemma í sögunni. Það er alls ekki erfitt að setja sig í spor einstaklings sem missir hér um bil vitið úr hrifningu gagnvart Monroe. Sjálfur hefði ég eflaust hent mér á fjórar fætur og þóst vera fótaskemillinn hennar bara til að vera nálægt henni. En ef Clark hefði ekki skrifað sögurnar sjálfur frá sínu eigin sjónarhorni hefði ég miklu frekar verið til í að sjá meira af samskiptunum á milli Olivier og Monroe. Mjög óraunsæ og nördaleg krafa, en það sýnir bara hversu góðir leikararnir voru.
Þetta er svei mér þá blandaður poki. Myndin er svo hrikalega vel leikin og indæl til áhorfs að það er erfitt að dást ekki svolítið að henni, en ef henni er skellt á krufningarborðið má auðveldlega sjá að þetta er ekkert eitthvað sérstætt sem mun lengi lifa í minninu. Þetta er afbragðstækifæri fyrir Williams til að sýna enn og aftur að hún er stórkostleg leikkona. Ætli hæfileikarnir hafa ekki bara borist gegnum líkamsvessa Heaths Ledger? Síðan Brokeback Mountain hefur hún allavega orðið betri og betri með hverju ári.
Hér má sjá sýnishorn úr myndinni:





