Sunnudagsdekrið
22 janúar 2012 - Heiða Þórðar


Gleðilegan sunnudag til sælu. Er ekki málið að dúlla aðeins við sjálfa sig, áður en haldið er inn í splunkunýja viku? Treysti því að þið hafið dekrað við húðina í gærmorgun.
Þessi djúpnærandi hármaski er sannkölluð ávaxtasprengjubomba. Sérstaklega góður fyrir þurrt og skemmt hár. Hjálpar til við að afrafmagna hárið.
Það sem þarf í maskann er eftirfarandi:
2 appelsínur (takið börkinn utan af)
1/2 epli (skrælið)
1/2 banani (afhýðið)
1/2 tsk timjan
Setjið allt hráefnið saman í blandarann og látið hann vinna þar til úr verður nokkurs konar jafn og frekar þykkur djús. Þú átt eftir að sjá litla bita af ávöxtunum í maskanum, þannig á það einmitt að vera.
Nuddaðu maskanum vel inn í rakt hárið og ekki gleyma hársverðinum.
Látið standa í 20 mínútur. Gott er að setja rakt handklæði á meðan þú biður. Það eitt tvöfaldar virkni efnanna. Ég treysti því að þegar þú ert komin á þetta stig, þá sértu með fallega tóna í eyrunum. Hreinsið maskann úr hári og hársverði, með því að þvo það og næra eins og þú gerir venjulega.
Litlu ávaxtabitarnir eru hugsanlega ennþá sýnilegir í hárinu. Burstaðu þá bara úr með fínni greiðu. Og gerðu það við hár þitt, sem þú ert vön að gera.
Þú ert rosa sæt, ekki satt?
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





