logo

Ása Jewellery

23 janúar 2012 - Anna Birgis

Fallegir íslenskir skartgripir hannaðir af Ásu.
 
Þegar ég var í menntaskóla, vissi ég að mig langaði í framhaldsnám sem tengdist handverki eða hönnun. Ég velti ýmsu fyrir mér og fékk upplýsingar frá háskólum, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum.
 
Fyrir valinu varð gull-og silfursmíðanám í Lahti Design Institute í Finnlandi. Eftir fjögurra ára nám, útskrifaðist ég og fór beint í meistaranám í iðnhönnun (MA) í University of Art and Design UIAH í Helsinki. Ég kunni mjög vel við mig í Finnlandi og bjó þar í 10 ár. Ég hef mjög gaman af því að ferðast og sæki raunar innblástur til þessara ferða minna. Það var t.a.m. ævintýraþráin sem dró mig til Suður-Kóreu þar sem ég starfaði um eins árs skeið sem iðnhönnuður. Í lok þeirrar dvalar, lagðist ég í flakk um suðaustur Asíu í nokkra mánuði með bakpokann minn. Það var ótrúlega upplifun. Ég hef einnig heimsótt Afríku og Indland en heimurinn togar sífellt í mig. Mig dreymir um nýja staði til að heimsækja.
 
 
 
 
 
 
Skartgripir asa fást víðsvegar um landið í úra- og skartgripaverslunum. Það er hægt að nálgast lista yfir þær inni á heimasíðunni minni, asajewellery.com, en ég get t.d. nefnt Kraum og Melbu hér á höfuðborgarsvæðinu.
 
Ég spurði Ásu um uppáhalds mun/hlut:
 
Þetta er mjög erfið spurning fyrir hönnuð, það er jú erfitt að gera upp á milli barnanna sinna. Sjálf nota ég gjarnan sama skartið í ákveðinn tíma en skipti svo yfir í eitthvað annað og nota það einungis. Þannig finnst mér stundum eins og ég sé að uppgötva skartgripina mína upp á nýtt.
 
 
 
 
 
 
Áttu uppáhalds hönnuð, erlendan og íslenskan?
 
Finnski hönnuðurinn Kaj Franck (1911-1989) er í miklu uppáhaldi hjá mér. Hann hannaði til dæmis mikið af glerhlutum og mikið af hans hönnun er enn í framleiðslu. Eldhúsið mitt er fullt af hlutum eftir hann. Af íslenskum hönnuðum, get ég nefnt Tinnu Gunnarsdóttur en hún hefur hannað skartgripalínu sem asa mun framleiða og kemur í verslanir í vor.
  
Ef þú værir ekki að hanna, hvað gætir þú séð þig vera að gera annað?
 
Eftir að ég útskrifaðist sem gull- og silfursmiður var ég að spá í frekara nám í skúlptúr. Ég held að það hefði mögulega hentað mér. En ég tók hins vegar þá ákvörðun að fara í meistaranám í iðnhönnun og sé ekki eftir því.

Ég fer mikið í fjallgöngur og á skíði. Nýverið fékk ég áhuga á garðyrkju en það á nú alveg eftir að koma í ljós hversu græna fingur ég er með!
 
 
 
 
En hver er uppáhalds flíkin?

Ég held að fylgihlutir séu mínar uppáhalds flíkur. Húfur, treflar, klútar, sokkar… ég er mjög veik fyrir þessu öllu saman. Líkt og með skartgripina, þá tek ég ástfóstri við ákveðna hluti sem ég nota þá bara í ákveðinn tíma og skipti svo yfir í eitthvað annað.
 
 
Myndir þú mæla með því fyrir ungu kynslóðina að kynna sér gullsmíði?
 
Já, svo sannarlega. Þeir sem eru nákvæmir, handlagnir og þolinmóðir eiga vel heima í gullsmíði. En þetta er mikil vinna og samkeppnin er hörð, svo það er ekki verra að hafa dágóðan skammt af þrjósku og dugnaði í farteskinu líka.
 
Það er hægt að nálgast skart Ásu á heimasíðunni  og einnig á Facebook.
 
Höfundur: Anna Birgis
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur