Mýkri hendur með rjúkandi kaffi
23 janúar 2012 - Heiða Þórðar


Ef þú ert eins og ég og elskar kaffi þá er þetta rétta uppskriftin fyrir þig. Við ætlum þó ekki að drekka kaffið að þessu sinni. Eða jú, fáum okkur kaffi.
Við verjum sjaldan hendur og fætur og sumir halda að ekkert þurfi að sinna þeim. Ekki rétt.
Hendur og fætur þarf að hugsa um, rétt eins og allt annað. Þessi skrúbbur hreinsar, nærir og mýkir. Ef þú vilt mjúkar hendur og fætur, þá er þessi skrúbbur ómissandi.
Það sem til þarf
2 msk nýmalaðar kaffibaunir
2 msk kakó (þarf ekki – val)
1 tsk sjóðandi heitt vatn
1 tsk rjómi eða mjólk
2 tsk ólífuolía (þarf ekki –gott sérstaklega fyrir þurrar hendur)

Aðferð
Blandið kaffinu saman við sjóðandi vatnið og látið kaffið leysast vel upp. Ef þið notið kakó einnig, leysið það upp með kaffinu.
Setjið rjómann eða mjólkina saman við kaffið. Fyrir mjög þurrar hendur og fætur setjið 2 teskeiðar af ólífuolíu eftir að þið hafið sett mjólkina.
Farið inn á baðherbergi og verið yfir vaski. Hellið smá magni af blöndunni yfir hendurnar og nuddið öllu inn í húðina með hringlaga hreyfingum.
Endurtakið þar til blandan er búin.
Hreinsið hendurnar vel með ilvolgu vatni (ekki sápu).
Njóttu kaffiilmsins í vitunum og mýkri handa og fóta.
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





