logo

Karlmannleg olía léttir...

...konum heimilisstörfin! Eða það segir frú Kvaran vinkona vor. Hlustið á þetta!
Fátt er karlmannlegra en brúsi af WD-40 olíu enda eiga flestir karlmenn hana til í bílskúrnum. En vissuð þið að olían getur verið nytsamleg við heimilisstörfin líka?
 
Tengdadóttir mín er nú ekki sú húslegasta (enda nota ég hvert tækifæri til að kenna henni handtökin) en hún sagði mér að hægt væri að nota WD-40 til að ná vaxlitum af máluðum veggjum. Síðan þarf að sjálfsögðu að ná olíunni af með sápu á eftir, til dæmis með uppþvottalegi.
 
Einnig gagnast WD-40 vel til að ná miðum af glerkrukkum þegar maður er að sulta á haustin.

steina@spegill.is
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur