Ekki missa greiðuna!
24 janúar 2012 - Heiða Þórðar


Hjátrú okkar Íslendinga er þrælsmellið fyrirbæri finnst mér. En trúum við þessu í raun? Trúum við því að stigi og svartur köttur geti hugsanlega eða með einhverjum hætti breytt örlögum okkar? Sköpum við ekki okkar eigin raunveruleika?
Á tímum tæknivæðingar, örrar þróunar og mikils upplýsingaflæðis er hægt að hugsa sér að hjátrú lifi ekki góðu lífi meðal fólks. Þó er nú svo að fólki er og mun ekki hætta að vera órótt gagnvart aðstæðum sem það hefur ekki fulla stjórn á. Sömuleiðis varðandi hluti sem það þekkir ekki. Hér á eftir fara nokkrar „staðreyndir“, en hjátrú okkar Íslendinga hefur lítið breyst á sl. 30 árum:
Trúir þú:
-að ef þú tekur eitt grátt hár af höfði þínu, þá komi þrjú grá hár í staðinn...
-að ef þú klippir hár þitt á föstudeginum þrettánda munirðu uppskera höfuðkvalir út árið...
-að ef þú missir greiðu á meðan þú ert að greiða þér, þá eigirðu von á miklum vonbrigðum í nánustu framtíð...
-að ef þú brýtur spegil, hljótir þú sjö ára ógæfu...
-að ef þú heldur lokk af hári nýbura, munirðu uppskera heppni?
-að ef augnhár dettur, að setjir þú það á fingurinn og ef það fýkur í burtu, muni óskir þínar rætast.
-að ef þú klippir neglurnar á föstudögum og sunnudögum boði það ógæfu...
-að ef þú baðar þig upp úr dögginni á Jónsmessunótt, þá hverfi allir sjúkdómar og þér verði ekki misdægurt næsta árið...
-að á Írlandi er afar óheppilegt að mæta rauðhærðri konu á förnum vegi...
Og að lokum;
Hræðsla við töluna 13 er kölluð triskaidekafobia. Ýmsar skýringar hafa verið settar fram um uppruna þessarar fælni og hjátrúin sem tengist henni birtist í ýmsum myndum. Til að mynda hafa mörg hótel enga hæð sem kölluð er 13. hæðin, happdrætti forðast að gefa út miða númer 13, sumum finnst borðhald með 13 manneskjum óhugsandi og fjöldamorðingjar sem hafa 13 stafi í nafninu sínu eru tíndir til hjátrúnni til staðfestingar. Þegar þrettánda dag mánaðarins ber upp á föstudag á dagurinn að vera slíkur óheilladagur að sumt fólk forðast jafnvel að mæta til vinnu. (heimild: visindavefurinn.is)
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





