Karnival -íslensk hönnun
24 janúar 2012 - Anna Birgis
Hún heitir Erla Stefánsdóttir og er konan á bakvið Karnival. Hún er 28 ára gömul, tveggja barna móðir.
Ég hef stundað tónlistarnám allt mitt líf, lærði á píanó og síðar á rafbassa en endaði svo í söngnámi. Þar að auki lauk ég stúdentsprófi af myndlistarbraut F.B. og tók stefnuna á að verða húðflúrari. Út frá því að ætla að verða syngjandi húðflúrs-listakona, svo endaði ég einhverra hluta vegna á að sækja um í fatahönnun í LHÍ en hafði ekki saumað flík alla mína ævi. Ég komst inn og þar fóru hlutirnir að gerast...
Ég útskrifaðist með B.A. úr fatahönnun vorið 2010 og útskrifaðist svo af jazz- og rokksöngs braut vorið 2011. Ástæðan fyrir því að ég valdi hönnun var einfaldlega sú að stefnan mín er að vera húðflúrandi syngjandi fatahönnuður og það er hægt og rólega að verða að veruleika.
Hönnun Erlu er hægt að nálgast í Leynibúðinni, Collective of Young Designers á Laugarvegi 21 og í gegnum heimasíðuna.
Úr hvaða efnum ertu aðallega að hanna?
Kjólar og efri partarnir mínir eru flest allir mjög ,,loose" og flæðandi þannig að falleg, létt bómullar/teygjuefni eru ofarlega á listanum. Utanyfirflíkurnar eru oftast nær úr fallegum ullarefnum. Eiginlega bara hvað sem stemmningin býður upp á!
Hvaðan sækir þú þinn innblástur?
Úr tónlist, bíómyndum, frá öðru fólki, skrýtnum og skökkum hlutum og ég verð eiginlega að henda Patti Smith þarna inn því hún er bara óendanleg uppspretta innblásturs.
Finnst þér að efla mætti kennslu í hannyrðum og því sem þeim tengist í
grunnskólum landsins?
Mér finnst listgreinar alger nauðsyn í grunnskólum. Hvort sem það er myndlist, handmennt eða smíði, þá eru flest öll börn með botnlausan sköpunarkraft og alveg krítískt gefa þeim tækifæri til að prófa, upplifa og njóta alls þess sem listin hefur upp á að bjóða. Ég man að á sínum tíma, gat ég ekki beðið eftir að komast í myndlistartíma og alla þá tíma sem buðu upp á að vinna með höndunum en svo í dag er sonur minn til dæmis ekki í myndlistartímum í grunnskólanum sínum, sem er bara alger synd.
Uppáhalds hönnuður?
Vivienne Westwood og Yohji Yamamoto, ekki spurning!
Uppáhalds flík ?
Af minni eigin hönnun eru það tvær kápur, önnur úr útskriftarsýningunni minni (síð hermannakápa) og hin cape-kápan sem hefur reynst mér vel. Annars dýrka ég Munda peysuna mína sem og hermannajakkann minn sem ég fann hjá Rauða Krossinum.
Hvernig er þinn frítími?
Börnin mín tvö eiga nærri allan minn frítíma en annars er ég rosalegur bíómynda-njörður og dýrka gott sjónvarpsefni. Tónlistin er svo alltaf rétt handan við hornið og eitthvað að stússast í því.
Þú finnur hennar hönnun hér og einnig á facebook .
Höfundur: Anna Birgis
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





