Georg Óskar -íslensk myndlist
25 janúar 2012 - Heiða Þórðar


Georg Óskar er ungur og upprennandi listamaður búsettur í Reykjavík. Hann útskrifaðist úr fagurlist frá Myndlistarskólanum á Akureyri eftir að hann lauk myndlistarnámi sínu frá Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Honum hlotnaðist sá heiður að vera gestanemi í Lahiti Institute of Fine art í Finnlandi.
Óskar eins og hann er alla jafna kallaður, hefur haldið fjöldann allan af samsýningum og ber þar helst að nefna samsýningu árið 2007 í Florence Biennale og GÓMS; samsýning með Margeiri Sigurðssyni 2008.
Einnig hefur hann haldið einkasýningar víðs vegar um land. Framundan hjá Óskari er myndlistarsýning á nýjum verkum sem haldin verður í Artíma gallerý í Reykjavík. Hér að neðan getur að líta brot af verkum þessa hæfileikaríka listamanns.

Kóngurinn 120x90 cm

Rosita 150x120 cm

TeddyBear Volcano eruption 160x150 cm

Skölli Fröllmundarson 200x180 cm

Stína borðar ryk 200x180 cm

Dagbók á eyðum 150x120 cm
Hægt er að sjá fleiri verk eftir Georg Óskar með því að smella hérna.
Við á speglinum óskum Óskari velfarnaðar í sköpun sinni og komum klárlega til með að fylgjast með honum í framtíðinni.
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





