logo

Gleðjið eiginmanninn eftir vinnu

Þegar húsbóndinn kemur þreyttur heim eftir langan dag á vinnustaðnum, þá er ráð að gleðja karlpunginn. Ekki satt? Svo segir Kitschfríður hin ráðagóða. Sjaldan bullar hún, konan sú. Lítið á þetta.
Setjið þægilega tónlist á, deyfið lýsinguna og hafið fordrykkinn tilbúinn. Munið hvað J.R. varð alltaf glaður að fá viskísopann sinn hjá Sue Ellen þegar hann kom heim á South Fork eftir langan og strangan dag illverka.

Stingið inniskónum hans í ofninn tímanlega svo það verði notalegt fyrir hann að fara í þá. Setjið Moggann við húsbóndastólinn og ef blaðið er eitthvað krumpað er ekki úr vegi að strauja létt yfir forsíðuna.

Farið yfir íbúðina og gætið þess að hún sé snyrtileg. Rennið yfir gólfin, skrúbbið baðherbergið létt og dustið það helsta. Hann verður að langa til að koma heim eftir vinnu, þá eru minni líkur til að hann fari á barinn með vinnufélögunum. Heimili mannsins er hans helgidómur!

Hafið ykkur sjálfar dálítið til, þó ekki of mikið. Nægja ætti að leggja hárið, lakka neglurnar, farða sig með léttum kvöldfarða og skipta yfir í nýþvegna blússu. Og gleymið ekki handkreminu svo hægt sé að fara mjúkum höndum um bóndann til að hjálpa honum að slaka á!

Og að lokum í bili fyrst við erum með karlinn á heilanum...þetta:

Þegar eiginmaðurinn fær grunsamlegt bréf í póstinum, er ráð að stinga því inn í frysti í nokkra tíma. Þá er auðveldlega hægt að smeygja bréfahníf undir lokið á umslaginu og opna það án þess að það sjáist. Svo má léttilega líma það aftur á ný, hnegghnegg. Þá má einnig opna bréfið yfir vatnsgufu en þá gæti verið vissara að strauja það á eftir.

steina@spegill.is
 
 
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur