logo

Jarðaber við þvagstemmu

26 janúar 2012 - Heiða Þórðar

 
Jarðarber eru ekki bara bragðgóð, þau eru mjög næringarrík. Sem dæmi þá er meira af C-vítamíni í átta jarðarberjum en í einni appelsínu.
 
Eða um 140% af ráðlögðum daglegum skammti af C-vítamíni. 
Jarðarber eru fyrirtak til að nota sem náttúrulegt tannhvíttunarefni. Sýran í ávextinum hjálpar til við að hreinsa tannstein.
 
Látið safa úr jarðarberjum liggja á tönnunum í 10 mínútur og hreinsið síðan af með volgu vatni.
 
Jarðarber eru til hvít og gul og sum bragðast eins og ananas...
  
Rómverjar elskuðu jarðarber og ekki bara bragðsins vegna, þeir trúðu á lækningarmátt berjanna.
 
Ef þú ert að fylgjast með mittismálinu, því ekki að prófa að prófa smá svartan pipar á jarðarberin þín í stað sætuefna? Það bragðast betur en það hljómar…
 
Jarðarber þykja góð við slæmum maga, lystarleysi, þvagstemmu, brjóstveiki, liðaverkjum og steinum í nýrum og blöðru.
 
Fullur bolli af jarðarberjum inniheldur aðeins 55 kaloríur.
 
Í einu jarðarberi eru 200 fræ.
 
Jarðarber blandast mjög vel saman með flestum ávöxtum og því tilvalin í morgunbústið. Í góðu lagi að sleppa sér stundum og búa til alvöru sjeik!
Hér á eftir er uppskrift að ljúffengum jarðarberjasjeik.
 
Auðvelt í framkvæmd og hrikalega gott:
 
2 matskeiðar vanilluís
1 1/2 bolli af frosnum jarðarberjum
1/2 bolli af frosnum bláberjum
1 bolli mjólk
1/2 teskeið af sítrónusafa
þeyttur rjómi
 

Allt sett í blandarann og hrært uns þú getur ekki beðið lengur. Blandan sett í hátt glas og rjómatoppur ofan á. Fallegt að skreyta með jarðarberjum og bláberjum, sem skorin eru smátt og dreift ofan á rjómann. 

 
heida@spegill.is
 
 
Höfundur: Heiða Þórðar
 "Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-

Ritstýrur