Karrý -meinhollur andskoti
26 janúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Karrý er dúndur krydd, ef þið vissuð það ekki. Þá takið mig trúanlega. En ég veit að ykkur finnst það gott á bragðið. Ég bóka það.
Ég gróf upp gormabók til að grúska, les stundum svona matarskrif eins og kunnugt er orðið. Þessi er í safni af öðrum alls konar. Og snýst um karrý, en engan finn ég höfundinn. Svo eins og mér einni er lagið, deili ég með ykkur hugmyndinni án þess að spyrja kóng né prest.
800 g lambakjöt
20 litlar kartöflur
3-4 dl vatn
3 laukar í bátum
gult karrýmauk, ein msk
tsk salt
tsk svínakrydd
dós kókosmjólk
msk sykur
Mjólkina í stóran pott og hita með karrýinu. Hræra saman. Kjötið út í og steikja í 5 mínútur. Vatni bætt við og látið sjóða í 20 mínútur. Kartöflur og 10 mínútna suða í viðbót. Laukur og 5 mínútur enn. Sykur, krydd og salt og hræra.
Bera fram með...viltu giska? Já, hrísgrjónum auðvitað. Skrambi gott með karrý.
steina@spegill.is
Höfundur: Steinunn Fjóla Jónsdóttir
Ástin er gildra. Þegar hún birtist sjáum við aðeins ljósið, ekki skuggana.- Paulo Coelho





