Risastór íbúð á litlum fleti
26 janúar 2012 - Heiða Þórðar


Flestir vilja hafa rúmt um sig og sumum finnst þeir aldrei hafa nógu mikið pláss. Aðrir sanka að sér endalaust af húsgögnum á meðan enn aðrir láta sér nægja sitt og eru sáttir. Svo eru það þeir sem gera ótrúlegustu hluti úr engu. Eða stóra úr smáu.
Mig langar að sýna ykkur íbúð sem er bæði elegant og rúmgóð. Nýtískuleg og smart. Hversu stór er íbúðin? Gettu....aðeins 39 fermetrar.
Með góðri skipulagningu og hagkvæmni tókst eigandanum að skapa yndislega fallega, hlýlega en jafnframt glæsilega íbúð.
Hátt til lofts, viðargólfin eru hvítmáluð, veggirnir hvítir, hugsað hefur verið fyrir hverjum hlut og er í engu ofaukið.
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





