Handverk Beggu -íslensk hönnun
27 janúar 2012 - Heiða Þórðar


Ég dáist að íslensku handverki og konum sem sinna slíku af alúð. Ég rakst á eina dömu í netheimum sem hannar og framleiðir fallegar húfur, hárbönd, hárskraut og margt fleira. Hún er köllluð Begga og fyrirtækið hennar einfaldlega; Handverk Beggu.
Hér að neðan má sjá nokkur sýnishorn af einstaklega fallegum hlutum eftir Beggu.
Begga notar að mestu íslenska ull í verkin sín. Og er gaman að segja frá því að hannyrðir hennar eru til sölu gegn mjög svo sanngjörnu verði.

Einstaklega fallegir blúndutreflar, til í fjölmörgum litum.

Hlý, falleg og ómótstæðileg húfa í gráu og hvítu...

...og önnur í svörtu, gráu og hvítu.

Fallegar blómanælur úr þæfðri ull, fáanlegar í mörgum litum.

Bleikt hárband handa alvöru prinsessum.

Hárböndin fást í mismunandi útfærslum og litum eins og sjá má.

Fallegar og öðruvísi blómateygjur, enn og aftur eru boðið upp á fjölda lita.
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
Ástin er gildra. Þegar hún birtist sjáum við aðeins ljósið, ekki skuggana.- Paulo Coelho





