Klassísk megrun
27 janúar 2012 - Steinunn Fjóla Jónsdóttir


Auðvitað getur konan ekki komið algerlega í veg fyrir það, að æskublóminn fölni að einhverju leyti, en þótt hún verði frú, þarf hún samt ekki nauðsynlega að komast í það holdarfar, sem gerir hana jafnstóra á alla vegu.
Svona hefst lesturinn er ég fletti upp klassískri megrun hjá frú Kitschfríði Kvaran. Og áfram höldum við...
Þessu er hægt að verjast með ýmsum ráðum. Ég get ekki hugsað mér, að það sé slíkt kjötstykki, sem karlmaðurinn helzt kýs að hafa á kné sér eða vefja í faðmi sínum, jafnvel þótt góð og göfug sál sé í öllum þeim miklu umbúðum.
Klassísk megrun frú Kitschfríðar
Morgunverður: Eitt greipaldin (engan sykur út á! Notið Canderel) og ein ristuð fransbrauðsneið.
Hádegisverður: Eitt harðsoðið egg og gulrót að eigin vali. Tebolli. Ein knekkbrauðsskífa.
Kaffitími: Enginn. Annars væri þetta engin megrun! Ég banna Manóló líka alltaf að fá sér með kaffinu þegar ég er í megrun.
Kvöldmatur: Rækjukokteill. Bannað að fá sér aftur. Sleppið majónesinu en notið fituskert kremfress.
Drekkið mikið vatn. Kaffi og sígó er leyfilegt hvenær sem þörfin segir til sín. Það er auðvitað alveg bannað að fá sér púrtara og þvíumlíkt en gin og tónik er í lagi, enda hitaeiningasnauðara. Haldið þetta út í minnst 4 vikur (og þá á nú ginið og tónikið eftir að koma sér glimrandi vel, hnegghnegg). Verið ekkert að sprikla allt of mikið til að grennast, það er ekki dömulegt, gönguferðir duga alveg. Sjálf fer ég á þennan kúr árlega til að halda mér slankt og sætri.
Koma svo stelpur, allar í ríkið ef við eigum að lifa þetta af!
steina@spegill.is
Höfundur: Steinunn Fjóla Jónsdóttir
Ástin er gildra. Þegar hún birtist sjáum við aðeins ljósið, ekki skuggana.- Paulo Coelho





