logo

Kynlífsróbót eða alvöru?

27 janúar 2012 - Heiða Þórðar

-Ég er sko alveg búinn að gefast upp á þessum kerlingum!
Hér eftir verð ég einn. Alveg á hreinu! Sítuðandi og löðrandi í dramatík og kjaftæði þessar kerlingar.
Ok. Kannski verð ég ekki alveg einn; ég og Lóa Fimm-boga verðum eitt
Hver hefur ekki heyrt þetta?
 
Eða:
 
-Allir karlmenn eru svín, alveg búin að fá nóg af þeim! Bara graðir, ryðgaðir naglar. Karlmenn eru skíthælar! Svo er grenjað... og bætt við: Ég læt aldrei karlmann særa mig aftur!
 
Ég persónulega þoli ekki svona alhæfingar, enda er hundur fyrir mér ekki það sama og hundur. Ekki frekar en karlmaður er það sama og karlmaður.
 
En snúum okkur að þeim sem við getum ekki lifað án í enda dags, ekki frekar en þeir geta verið án okkar.
 
Ég er að tala um karlmenn. Enn og aftur...
 
Ég á vin.
 
Stundum langar mig að berja hann í hausinn. Ég elska hann samt. Hann er dramatískari en dauðinn sjálfur og móðir mín til samans. Útkoman? Tja...
 
Hann er einn af þeim sem er kominn með upp yfir hálsinn og allt um kring af konum, sem hann nefnir því frumlega nafni gálur...þegar sá gállinn er honum.
Þá langar mig einmitt til að berja hann í hausinn.

-Heiða, „þetta“ heldur bara aldrei kjafti! Alltaf eitthvað drama og vesen...best að fá sér dúkku bara. Þær halda þó kjafti og eru alltaf til taks. ,,Hitt" var vita náttúrulaust. Ég er alveg búinn að fá nóg af þessu. Ég fæ aldrei að ríða.  Já, ég fæ mér bara kynlífsdúkku, þær verða ekki óléttar, bætti hann við dreyminn.
 
Og hann var að meina það!
 
Nú er það súrt, en alls ekkert sárt að þessi vinur minn álítur að það eina jákvæða við konur sé að stunda kynlíf með þeim. Og sorglegt er það.
 
Ég fann fyrir hann og þá sem eru í sömu sporum dúkku, öllu heldur róbot sem á að vera svo eðlileg að blóðið nánast rennur í æðum hennar.
 
Myndbandið er hrikalega fyndið. Þú bara verður að sjá.
 
Róbotinn talar að vísu og fílar ekki að það sé verið að káfa á brjóstunum hennar. Hugsanlega er hún fötluð þar sem hún situr í hjólastól. Svo er hún með tilfinningar...
 
 

Dúkku eða alvöru?
 
Þitt er valið...

heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
Ástin er gildra. Þegar hún birtist sjáum við aðeins ljósið, ekki skuggana.- Paulo Coelho

Ritstýrur