Miklar leysingar í farvatninu
27 janúar 2012

Skammt er stórra högga á milli í veðrinu hér á landi þessa dagana. Undanfarna daga hefur ófærð, hríðarbylur, fannfergi og snjóflóðahætta verið helsta umfjöllunarefnið. Í dag fer aftur á móti að hlána og gerir það svo af alvöru seinnipartinn á morgun með asahláku, sér í lagi á suður- og vesturlandi.
Asahláka verður ekki nema þegar snjór eða klaki er á jörðu, vindur um 15-20 m/sek, hiti um eða yfir 5°C og úrkoma mikil á frekar skömmum tíma. Nú er mikill snjór og stór hluti hans nýlegur og auðleystur. Í dag blotnar í snjónum og hengjur og grýlukerti fara af stað á þökum. Um leið og bloti kemur í snjóinn er hætta á að leki inn í hús og þá sér í lagi út frá snjó á svölum og þökum. Moka þarf því sem allra fyrst snjó af þeim stöðum svo framarlega sem það sé ekki á kostnað öryggis einstaklinga.
Einari Sveinbjörnsson veðurfræðingur Veðurvaktarinnar segir að framan af morgundeginum verði úrkomulítið. Dálítil rigning um hádegi, en rigningin aukist verulega suðvestan- og vestanlands undir kvöldið. "Frá þeim tíma og fram á sunnudag má reikna með eindreginni slagveðursrigningu. Áætluð sólarhringsúrkoma er um 20-25 mm á höfuðborgarsvæðinu frá hádegi á laugardag. 40-60 mm úrkoma verður hins vegar á Hengils- og Bláfjallasvæðinu ofan byggðar. Samhliða verður 5-7°C hiti og SSA-átt, 15-18 m/s frá því síðdegis á morgun og þar til kuldaskilin verða gengin yfir um hádegi á sunnudag. Þá snýst vindur til SV-áttar og kólnar skarpt."
Þetta er þriðja helgi ársins sem asahláka verður. Töluvert var um vatnstjón í fyrri tvö skiptin. Þá bárust VÍS vel yfir 200 símtöl en að meðaltali berast félaginu 20-30 símtöl yfir eina helgi. Tjónin eru misalvarleg. Versta dæmið fyrir hálfum mánuði var í kjallaraíbúð þar sem vatn fossaði inn sem stórfljót þannig að þegar íbúarnir vöknuðu og stigu fram úr náði vatnið þeim í miðja kálfa.
Forvarnir eru gríðarlega mikilvægar í aðstæðum sem þessum. Þær duga þó ekki alltaf þegar vatnselgurinn og aðstæðurnar eru erfiðari en fólk ræður við.
Mikilvægast er að hreinsa frá niðurföllum og tryggja að þau séu ekki stífluð.
Hreinsa snjó af svölum.
Hreinsa þakrennur og niðurföll og tryggja að þau geti tekið á móti vatninu, sér í lagi á flötum þökum.
Búa til rásir í snjóinn til að vatn eigi greiða leið frá húsum.
Ástin er gildra. Þegar hún birtist sjáum við aðeins ljósið, ekki skuggana.- Paulo Coelho





